Ný fóðurverksmiðja Líflands.

  • 7. október 2010
  • Fréttir
Ný fóðurverksmiðja Líflands.

Fyrirtækið Lífland opnaði í dag með viðhöfn glæsilega fóðurverksmiðju í Grundartanga….

Verksmiðjan á  sér nokkra forsögu en það var árið 2006 sem eigendur fyrirtækisins ákváðu að fara í þessar framkvæmdir. Það hlýtur að skoðast sem afrek að fyrirtæki skuli geta lagt í svona framtak við þær aðstæður sem nú eru hér á landi.  
Þarna hefur verið myndarlega að verki staðið, allar byggingar nýjar og verksmiðjan sjálf af nýjustu gerð, og mjög fulllkomin og afkastamikil.  Athygli vekur hve allt er vandað og snyrtilegt í verksmiðjunni og umhverfis hana.
Bergþóra Þorkelsdóttir, framkvæmda og markaðsstjóri Líflands tók á móti gestum en það var Guðni Ágústson sem stýrði veislunni. Þórir Haraldsson stjórnarformaður Líflands tók til máls og sagði sögu hugmyndarinnar og framkvæmda. Aðrir sem tóku til máls voru Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, Jón Bjarnason sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra og Gísli Gíslason.
Margir gestir þáðu gott boð og kom fólk víða að. Veitingar voru miklar og góðar.
Verksmiðjan á án efa eftir að hafa mikla þýðingu fyrir íslenskan landbúnað og styrkja hann í samkeppninni við innfluttar landbúnaðarafurðir. Hestamenn sem og aðrir bændur munu nú njóta fóðurs sem framleitt er með bestu tækni sem völ er á.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link