Stóra Þeysmálið upplýst
Ýmislegt hefur verið sagt og skrifað í moldviðrinu eftur bankahrunið. Persónur hafa verið teknar af lífi án dóms og laga á prenti og í bloggi. Tíminn mun væntanlega leiða í ljós hverjir eru sekir og hverjir saklausir.
Í vikublaðinu Fréttatímanum í dag er viðtal við Finn Ingólfsson, kaupsýslumann og fyrrum ráðherra og bankastjóra seðlabankans. Þar segir hann að flest sem sagt hefur verið um fjármál hans og félaga í hans eigu sé lygi. Í viðtalinu segir hann einnig að hann og Ólafur Ólafsson hafi verið vinir lengi, en einu viðskiptatengsl þeirra séu þau að þeir eigi saman stóðhestinn Þey frá Akranesi. Áhugavert fyrir hestamenn! Þess má geta að Finnur og Ólafur eiga 40% hvor í hestinum og Einar Öder Magnússon og Svanhvít Kristjánsdóttir í Halakoti 10% hvort.
Þeyr frá Akranesi er sennilega einn vanmetnasti stóðhestur landsins í betri kanti og hefur verið lítið notaður. Hann kom þó ekkert nærri málum í aðdraganda bankahrunsins. Hann er undan Otri frá Sauðárkróki og Ölrúnu frá Akranesi, sem er undan Kolfinni frá Kjarnholtum. Ölrún er núna ræktunarhryssa á Eyri í Flókadal, þar sem Benedikt Líndal er bústjóri.
Þeyr er með úrvals kynbótadóm, 8,55 í aðaleinkunn, og hefur náð umtalsverðum árangri í keppni í A flokki gæðinga, 8,66. Hann er með þrumu fína einkunn fyrir sköpulag, 8,30, þar af 9,0 fyrir bak og lend, og hófa. Hvergi veikur. Hann er með 9,0 fyrir tölt og vilja, og 8,5 fyrir brokk, skeið, stökk og fegurð. Meðaltal fyrir kosti 8,72.
Með tilliti til dóms, ættar og útlits (tinnusvartur) ætti Þeyr að vera í bullandi notkun sem stóðhestur. Hann er nú níu vetra en aðeins 77 afkvæmi eru skráð í WorldFeng. Ekkert þeirra er komið með dóm, enda elstu afkvæmin fædd 2006 og fjögra vetra á pestarári. Þetta segir okkur einnig að hann var ekkert notaður fyrr en fjögra vetra. Sex afkvæmi hans eru á fimmta vetur og þrjátíu og fjögur á fjórða, þannig að eitthvað ætti að slæðast í dóm í vor. Spennandi er að sjá hvernig úr rætist.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári