Undir hvern fóru þær ?

  • 5. desember 2022
  • Fréttir
Undir hvaða stóðhest var þeim haldið í sumar.

„Undir hvern fóru þær?“ hefur alltaf verið vinsælar greinar hér á vefnum. Ræktendur virðast hafa mikinn áhuga á því að sjá hvaða stóðhesta aðrir eru að velja á hryssurnar sínar.

Fjórar hryssur stóðu efstar í hver sínum flokki á Landsmótinu í sumar. Allar þessar hryssur eiga mæður og hér fyrir neðan er smá umfjöllun um þær og undir hvaða stóðhest þeim var haldið í sumar. Í hópnum eru tvær heiðursverðlaunahryssur ásamt tveimur minna reyndum ræktunarhryssum.

Spunadóttirin, Álfamær frá Prestsbæ stóð efst í flokki 7 vetra og eldri hryssna. Móðir hennar er heiðursverðlaunahryssan Þóra frá Prestsbæ en hún er undan Orra frá Þúfu í Landeyjum og heiðursverðlaunahryssunni Þoku frá Hólum. Þóra á sex sýnd afkvæmi og er meðaltal aðaleinkunnar þeirra 8,36. Álfamær er hæst dæmda afkvæmi hennar. Þóru var haldið undir Blakk frá Þykkvabæ í sumar. 

Efst í flokki 6 vetra hryssna er Skagadóttirin, Sögn frá Skipaskaga. Móðir hennar er Saga frá Skipaskaga undan Krák frá Blesastöðum 1A og Sjöfn frá Akranesi. Sögn er elsta og eina afkvæmi Sögu sem hefur verið sýnt. Sögu var haldið undir Veigarsson frá Skipaskaga, Króla frá Skipaskaga, í sumar. 

Ölnisdóttirin Hildur frá Fákshólum var efst í flokki fimm vetra hryssna. Móðir hennar er Gnýpa frá Leirulæk sem er undan Stikli frá Skrúð og Össu frá Engimýri. Hildur er elsta afkvæmi Gnýpu og sú eina sem hefur verið sýnd en Hildur hlaut 8,58 í aðaleinkunn. Gnýpa fór undir Vonanda frá Halakoti. 

Efsta fjögurra vetra hryssan á Landsmótinu var Vala frá Garðshorni á Þelamörk. Vala er undan Þráni frá Flagbjarnarholti og Eldingu frá Lambanesi. Elding er ekki enn á lífi en hún hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi árið 2018. Vala er yngsta afkvæmi hennar en hún á 15 skráð afkvæmi og hafa 12 af þeim verið sýnd og 10 af þeim hlotið fyrstu verðlaun.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link