Heimsmet í elsta flokki

  • 23. desember 2015
  • Fréttir
7 vetra og eldri hryssur.

Efstu tíu hryssurnar í elsta flokki eru ræktaðar á Íslandi fyrir utan eina sem kemur frá Þýskalandi, Stjörnudís vom Hof Osterkamp. Tæplega helmingur alla dóma á hryssum voru í flokki 7 vetra eða 543 alls. Flestar hryssurnar eru á sama aldri, fæddar árið 2008. Af feðrum þessara hryssna á Orri tvær dætur en aðrir feður eiga einn fulltrúa á lista efstu hryssna í þessum flokki þetta árið. Þrjár efstu hryssurnar eru allar frá Íslandi en efst á listanum er heimsmethafinn Sending frá Þorlákshöfn. Hún hlaut 8,55 fyrir sköpulag og 8,70 fyrir hæfileika sem gerir hana að hæst dæmda klárhrossi heims. Sending hlaut m.a. 10 fyrir tölt og 9,5 fyrir brokk, fegurð í reið og vilja og geðslag. Sending var sýnd af Helgu Unu Björnsdóttur.

Önnur er Kolbrá frá Kjarnholtum en hún var sýnd af Daníel Jónssyni. Kolbrá er flugvökur og með frekar jafnar gangtegundir. Fyrir tölt, hægt tölt, skeið og fegurð í reið hlaut hún 9,0 og fyrir vilja og geðslag hlaut hún 9,5. Þriðja er Þokudóttirin Þota frá Prestsbæ en hún er alsystir Þóru frá Prestsbæ sem hlaut á sínum tíma 9,08 fyrir hæfileika og m.a. 10 fyrir skeið. Þórarinn Eymundsson sýndi Þotu og hlaut hún fyrir hæfileika 8,67 og sköpulag 8,49. Hún hlaut m.a. 9,0 fyrir tölt, fegurð í reið og vilja og geðslag. 

7 vetra og eldri hryssur

8.64      Sending frá Þorlákshöfn    Álfur Selfossi      Koltinna Þorlákshöfn        Ísland
8.62      Kolbrá frá Kjarnholtum I   Orri Þúfu í LandeyjumDagrenning Kjarnholtum I      Ísland
8.60      Þota frá Prestsbæ Orri Þúfu í LandeyjumÞoka Hólum Ísland
8.55      Stjörnudís vom Hof Osterkamp      Leikur Lækjarbotnum       Fífa Herríðarhóli  Þýskaland
8.55      Edda frá Egilsstaðabæ       Gaumur Auðsholtshjáleigu            Yrja Skálmholti  Ísland
8.54      Freyja frá Baldurshaga      Ársæll Hemlu II  Silla Baldurshaga            Ísland
8.53      Kengála frá Neðri-Rauðalæk           Smári Skagaströnd           Koparlokka Flugumýri Ísland
8.52      Laufey frá Strandarhjáleigu Þorsti Garði        Lukka Hvolsvelli Ísland
8.49      Rebekka frá Kjartansstöðum           Arður Brautarholti           Krúna Kjartansstöðum      Ísland
8.49      Birta frá Laugardal           Aris Akureyri      Brá Laugardal     Ísland

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link