Skráning á Ís-landsmót á Svínavatni 5. mars
Hestamannafélagið Neisti mun standa fyrir Ís-landsmótinu sínu þann 5. mars nk.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í mótinu er bent á að skráningar þurfa að berist á netfangið [email protected] í síðasta lagi þriðjudaginn 1. mars.
Ekki verður tekið við skráningum eftir þann tíma. Eftirtalið þarf að koma fram: Keppnisgrein, kennitala knapa, og IS númer hests. Keppnisgreinar eru A-flokkur, B-flokkur og tölt. Skráningargjald eru 3.000. kr. á skráningu. Greiðist inn á reikning 0307 – 13 – 110496, kt. 480269-7139 í síðasta lagi þriðjudaginn 1.mars annars verður viðkomandi ekki settur á ráslista.
Sendið kvittun á [email protected] þar sem fram þarf að koma fyrir hvaða knapa og hest er verið að borga.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH