Einkunnalágmörk á Íslandsmót fullorðinna 2010
Samkvæmt lögum og reglum LH ber Keppnisnefnd að gefa út lágmörk fyrir Íslandsmót á hverju ári, 3 mánuðum fyrir Íslandsmót. Tekin var ákvörðun um að setja þau einum heilum neðar en meistaraflokkslágmörk eru nú og eru lágmörkin sem hér segir:
Tölt – T1 5,5
Fjórgangur – V1 5,2
Fimmgangur – F1 5,0
Tölt – T2 5,2
Gæðingaskeið – PP1 5,5
Fimi 5,0
Með keppniskveðjum,
Keppnisnefnd LH.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH