Hörður hlaut Æskulýðsbikar LH
Árlega veitir Landsamband Hestamannafélaga einu hestamannafélagi Æskulýðsbikar LH, en bikarinn er veittur því félagi sem skarað hefur fram úr í æskulýðsmálum.
Helga B. Helgadóttir, formaður Æskulýðsnefndar LH veitti, á Formannafundi LH í dag, Arnari Jónssyni Aspar, fulltrúa æskulýðsnefndar Harðar og Guðjóni Magnússyni formanni bikarinn fyrir fyrirmyndar æskulýðsstaf á liðnu starfsári.
Um 20 skýrslur æskulýðsnefnda bárust LH og í máli Helgu kom fram að greinilegur vöxtur og fjölbreytileiki sé í æskulýðsstarfi hestamannafélaga um allt land. Hestamannafélögin hafi verið iðin við að standa fyrir námskeiðum og reiðkennslum og fræðslu af ýmsu tagi, fjölbreyttum mótum s.s. smalamótum og þrautabrautum og bryddað upp á sniðugum nýjungum. Allar skýrslur æskulýðsnefnda sem bárust LH má nálgast hér á heimasíðu Landssambandsins.
Í máli formanns Harðar, Guðjóns Magnússonar kom fram að viðurkenningin væri honum afar hugleikinn og væri hann því afar stoltur af því að fá bikarinn til Mosfellsbæjar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH