Súrir pungar á Þorrablóti Fáks

  • 14. janúar 2010
  • Fréttir
Súrir pungar á Þorrablóti Fáks

Já það verða súrir pungar, súrmatur, hangikjöt, saltkjöt, harðfiskur, svið og allur almennur og góður þorramatur á boðstólum á Þorrablóti Fáks, að ógleymdum sætum pungum og gellum sem mæta á svæðið. Einnig verður boðið upp á guðaveigar í fljótandi formi.

Eftir góðan útreiðartúr á laugardaginn er tilvalið að skella sér á Þorrahlaðborðið hjá Fáki sem verður í félagsheimili Fáks þann 16. janúar. Húsið opnar kl. 17:00 og stendur veislan fram eftir kvöldi. Harmonikkuleikur, matur, söngur og gleði – hvað er hægt að hugsa sér það betra..?

Aðgangseyrir á Þorrahlaðborðið er aðeins kr. 3.000 og frítt fyrir 12 ára og yngri

Allir velkomnir á Þorrablót hjá Fáki.

Þorranefndin

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link