Folaldasýning í Söðulsholti
Laugardaginn 9.Janúar kl. 13.00 ætlum við í samstarfi við Snæfelling að vera með folaldasýningu í Söðulsholti. Hver skráning kostar 1000 kr, hægt er að skrá hjá Einari í síma 899 3314 eða hafa samband á [email protected].
Sýningin er opin öllum. Gefa þarf upp nafn,lit, fæðingarstað,föður, móðir, ræktanda og eiganda. Keppt verður í kynjaskiptum flokkum.
Skráningargjald greiðist inn á 0354-26-4027 og kt 540999-2019. Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 7.janúar.
Aðgangseyrir er 1000 kr. og innifalið í því eru kaffiveitingar. Frítt fyrir 12 ára og yngri.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári