Námskeið um byggingadóm
Endurmenntun LbhÍ í samstarfi við Hrossasræktarsamtök Suðurlands heldur námskeið um byggingadóma hrossa…
í Ölfushöllinni nk. laugardag. Örfá sæti eru laus ef við komandi hefur snör tök og skráir sig fyrir morgundaginn, fimmtudaginn 10. febrúar.
Markmið með námskeiðinu er að bjóða upp á ítarlega fræðslu um byggingu hrossa og hvaða atriði er verið að meta þegar hver eiginleiki byggingar er dæmdur. Einnig verður farið yfir reglur kynbótasýninga og það hvernig best er að stilla hrossi upp í byggingardómi. Námskeiðið byggir að hluta til á fyrirlestrum en mikil áhersla verður lögð á verklegar æfingar.
Kennarar: Þorvaldur Kristjánsson og Jón Vilmundarson, kynbótadómarar.
Staðir og tími: lau.12. feb. kl. 09:00 –16:00 (8 kennslustundir) í Ölfushöllinni.
Verð: 10.000 kr fyrir félagsmenn innan Hrossaræktarsamtaka Suðurlands, en 14.000 kr fyrir utanfélagsmenn.
(Bent er á að hægt er að sækja um aðild að HS að uppfylltum félagslögum þess, sjá heimasíðu samtakanna http://www.bssl.is/ Skuldlausir félagsmenn árið 2010 njóta afsláttarins.)
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 3.000 kr (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590. Senda kvittun á [email protected].
Skráningar hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á [email protected] eða í síma 433 5000 (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími – auk þess hvort viðkomandi er félagsmaður HS).
Minnum á Starfsmenntasjóð bænda – sjá nánar á www.bondi.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH