Flottu móti lokið á Kronshof-
Stærsta mót ársins í Þýskalandi var haldið í blíðskapar veðri síðustu helgi. Mótið fór fram á Kronshof en Kronshof er nálægt Hamburg. Mótið var vel sótt en áhorfendur voru um 1500 talsins. Allir gátu fundið flokk við sitt hæfi, hvort sem þú varst barn, ungmenni, fullorðin eða tilheyrði hóp heldri manna / kvenna.
Landsliðsþjálfari Þýskalands Magnús Skúlasson var á svæðinu „Kronshof er frábær staður fyrir stórmót, allt er vel skipulagt og bæði knöpum og áhorfendum líður eins og heima hjá sér. Ég er fullur sjálfstrausts um að við munum eiga mjög farsælt þýskt lið á næsta Heimsmeistaramóti í Berlín!“.
Frauke Schenzel og Tígull vom Kronshof unnu töltið (T1), Vicky Eggertsson og Hraki vom Wartberg unnu slaktaumatöltið (T2), Jonas Hassel og Blær vom Birkenhof unnu fimmganginn (V1) og Vicky Eggertsson og Herbert frá Halakoti unnu fimmganginn (F1).
Meðfylgjandi eru úrslit mótsins og myndband af úrslitunum í T1.
T1 – A-Úrslit
01: 450 Frauke Schenzel – Tígull vom Kronshof 8,61
02: 042 Jonas Hassel – Blær vom Birkenhof 7,61
03: 246 Steffi Svendsen – Kormákur vom Lipperthof 7,39
04: 143 Jacqueline Uelpenich – Gletta vom Schloßberg 7,28
04: 542 Fabienne Zimmermann – Magni vom Nordsternhof 7,28
T2 – A-Úrslit
01: 183 Vicky Eggertsson – Hraki vom Wartberg 7,71
02: 222 Inga Trottenberg – Kári von Pfingsthorst 7,00
03: 141 Annika Timmermann – Gleði von Hestabakki 6,92
04: 001 Steffi Pogany-Amand – Adam frá Aldenghoor 6,50
05: 538 Samantha Leidesdorff – Casanova vom Hrafnsholt 6,38
V1 – A-Úrslit
01: 042 Jonas Hassel [Erwachsene] – Blær vom Birkenhof 7,90
02: 450 Frauke Schenzel [Erwachsene] – Tígull vom Kronshof 7,87
03: 246 Steffi Svendsen [Erwachsene] – Kormákur vom Lipperthof 6,93
04: 238 Laura Grimm [Erwachsene] – Kolgrímur vom Neddernhof 6,64
05: 143 Jacqueline Uelpenich [Erwachsene] – Gletta vom Schloßberg 6,57
F1 – A-Úrslit
01: 171 Vicky Eggertsson – Herbert frá Halakoti 7,67
02: 087 Frauke Schenzel – Fannar frá Kvistum 7,62
03: 538 Samantha Leidesdorff – Casanova vom Hrafnsholt 6,95
04: 036 Jolly Schrenk – Bjalli von Berlar 6,60
05: 006 Marie Lange-Fuchs – Alsæla von Kjölavík 6,57
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH