Ungfolasýning í Ölfushöllinni
“Árleg ungfolasýning Hrossaræktarsamtaka Suðurlands verður laugardaginn 30. mars í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli í tengslum við Stóðhestaveislu Hrossaræktar.is. Fyrirkomulag ungfolasýningarinnar verður með svipuðu sniði og í fyrra. Starfandi kynbótadómarar munu taka út folana bæði fyrir sköpulag og hreyfingu. Rétt til þátttöku eiga folar fæddir árið 2010 og 2011. Sköpulagsmat hefst kl. 12:30. Dómarar raða efstu fimm folunum í hvorum flokki. Áhorfendur velja síðan álitlegasta folann í hverjum flokki. Efstu dómaravöldu folarnir úr hvorum flokki munu koma fram á stóðhestaveislu Hrossaræktar.is um kvöldið.
Hestarnir verða annaðhvort að vera járnalausir eða járnaðir kynbótajárningu. Ekki er heimilt að mæta með fola járnaða eingöngu á framfótum.
Síðasti skráningardagur er miðvikudagur 27. mars. Skráningargjald er 3.500 kr fyrir félagsmenn en 4.000 kr fyrir aðra. Skráningargjald greiðist á sýningarstað með reiðufé. Hægt er að senda mynd af folunum sem mun þá birtast í sýningaskrá. Tekið er við skráningu á sýninguna í síma 899 8180 eða á netfangið [email protected]
Félagsmenn og aðrir áhugamenn um hrossarækt eru hvattir til að mæta á þennan árlega viðburð og berja ungar ræktunarstjörnur framtíðar augum,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH