Sameiginlegir vetrarleikar næstu helgi

  • 28. febrúar 2011
  • Fréttir
Sameiginlegir vetrarleikar næstu helgi

Sameiginlegir vetrarleikar hestamannafélaganna Andvara og Gusts haldnir á Andvarasvæðinu verða haldnir nk. laugardag 5. mars.

Skráning í félagsheimili Andvara milli kl. 11-12 samdægurs, frítt er fyrir polla en 500 kr. skráningagjald er fyrir börn og 1000 kr. fyrir aðra.  Mótið hefst kl. 13 á keppni í pollaflokki inni í reiðhöll Andvara, keppni í barnaflokki verður á hringvelli en aðrir flokkar keppa á beinu brautinni þar sem riðið er hægt tölt út braut og fegurðartölt til baka.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

Pollaflokkur – 9 ára og yngri
Barnaflokkur – 10-13 ára
Unglingaflokkur- 14-17 ára
Ungmennaflokkur – 18-21 árs
Konur II – minna vanar
Karlar II – minna vanir
Heldri menn og konur (+50 ára)
Konur I – meira vanar
Karlar I – meira vanir
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link