Þátttakendur á Fjórðungsmóti 2023

  • 13. apríl 2023
  • Fréttir
Fjórðungsmót Austurlands verður dagana 6.-9. júlí 2023

Fjórðungsmót Austurlands verður haldið dagana 6-9 júlí 2023 á Stekkhólma 12 km fyrir utan Egilsstaði. Öll aðildarfélög geta sent 18 hesta í hvern flokk í gæðingakeppni. Töltkeppni mótsins er opin öllum, skeiðið einnig. Opin kynbótasýning þar sem bæði verður byggingardæmt og hæfileikadæmt.

Flokkar á mótinu verða eftirtaldir:

  • Barnaflokkur
  • Unglingaflokkur
  • Ungmennaflokkur
  • A flokkur
  • B flokkur
  • B flokkur áhugamanna
  • Tölt T1.
  • Tölt T3 ætlað fyrir áhugamenn og ungmenni velji þau þann flokk frekar.
  • Tölt T3 17 ára og yngri.
  • 100 metra fljúgandi skeið.

Sýning ræktunarbúa – óskum eftir þátttöku frá búum innan svæðisins sem aðildarfélögin ná yfir.Hlökkum til að taka á móti flestum í sólinni fyrir austan.

Fjórðungsmótsnefnd.[email protected]

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link