Töltkeppni, skeiðkappreiðar, fimmgangur og fjórgangur hjá Geysi
Skráning hefst í dag á töltkeppni, skeiðkappreiðar, fjórgang og fimmgang sem Geysir ætlar að halda um næstu helgi á Gaddstaðaflötum við Hellu, föstudaginn 15.júní og laugardaginn 16.júní. Á föstudaginn 15.júní er síðasti séns til að ná í tölteinkunn og tíma í skeiðgreinum inn á landsmót í Reykjavík 1012. Á laugardaginn 16.júní er svo fjórgangur og fimmgangur, þá er möguleiki til að ná sér í einkunn til að komast inn á Íslandsmót en lágmarkseinkunn þarf til að geta keppt á Íslandsmóti fullorðna. Einugis verður keppt í fullorðinsflokkum og er einn keppandi inná í einu í öllum flokkum. Það eru engin úrslit í neinum flokki, einungis forkeppni. Ef skráning er ekki næg í einhverjum flokki mun mótanefnd taka ákvörun um hvað skal gert.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH