Héraðssýning kynbótahrossa Sauðárkróki

  • 7. maí 2013
  • Fréttir
Héraðssýning kynbótahrossa Sauðárkróki

Fer fram á Sauðárkróki dagana 27. maí til 31. maí. Byggingadómar fara fram í Reiðhöllinni Svaðastöðum en hæfileikadómar á vellinum Fluguskeiði austan við reiðhöllina. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunniwww.worldfengur.com þar sem valið er „skrá hross á kynbótasýningu“. Síðasti skráningar – og greiðsludagur er föstudaginn 17. maí. Verð fyrir fullnaðardóm er 18.500 kr en fyrir byggingadóm 13.500 kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma aðeins til greina ef látið er vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir sýningu í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin [email protected] og  [email protected] . Endurgreitt er kr. 11.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 8.000,- fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í bygginga- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði.

Allar nánari upplýsingar í síma Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins 516-5000. Einnig er hægt að senda tölvupóst ánetföngin [email protected] og  [email protected].                   

 

Minnum á að allir stóðhestar verða að vera dna greindir svo og foreldrar þeirra. Úr stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir blóðsýni og spattmynd í Worldfeng svo hægt sé að skrá þá á sýningu,“  segir í tilkynningu frá Ráðgjafamiðstöð Landbúnaðarins

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link