Mun Herjólfur sigla til Frakklands?
Áhugi er meðal erlendra ræktenda fyrir stóðhestinum Herjólfi frá Ragnheiðarstöðum samkvæmt heimildum Hestablaðsins. Herjólfur var sýndur á LM2011 og hlaut 8,26 í aðaleinkunn, klárhestur. Þar af 9,5 fyrir tölt, fegurð og vilja. Hann fékk 9,0 fyrir stökk. Hann vakti athygli fyrir mikinn fótaburð og léttleika.
Vitað er að tveir svissneskir aðilar hafa borið víurnar í hestinn, en áhugasamastur mun þó vera frakkinn Pascale Kugler, sem á meðal annars stóðhestana Bjarma frá Lundum, Dalvar frá Auðsholtshjeigu og Geysi frá Sigtúni.
Helgi Jón Harðarson, ræktandi og eigandi Herjólfs, staðfestir að nokkrir aðilar hafi sýnt hestinum mikinn áhuga, en segir jafnframt að engin sala sé í höfn fyrr en allir endar séu hnýttir. Hesturinn sé hugsanlega til sölu, fyrir rétt verð eins og hann orðar það, en það sé hans ósk að hesturinn verði á Íslandi alla vega fram yfir LM2012 í Reykjavík. Herjólfur er nú í hólfi á Ragnheiðarstöðum í Flóa þar sem hann tekur á móti hryssum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH