Hestablaðið – Stóðhestar og hrossarækt

  • 20. apríl 2012
  • Fréttir
Uppkjöftun ungfola tefur fyrir erfðaframför

Í Hestablaðinu – Stóðhestar og hrossarækt, sem kemur út 26. apríl, er ítarleg grein eftir Kristinn Hugason, kynbótafræðing og fyrrverandi hrossaræktarráðunaut, um kynbótaskipulagið í hrossaræktinni.

Kristinn bendir á hvaða leiðir eru æskilegar við val og pörun einstaklinga, og hvað ber að varast. Hann telur að of mikil notkun á ósýndum ungfolum og „uppkjöftun“ á þeim sé vandamál í hrossarækt hér á landi og tefji fyrir erfðaframför, en hana mætti fjórfalda með réttu úrvali.

Lesið áhugaverða grein um kynbótaskipulagið eftir Kristinn Hugason í Hestablaðinu – Stóðhestar og hrossarækt.

Áskrifendur fá Stóðhestablaðið frítt. Hægt er að kaupa áskrift í síma 511-6622.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link