Spá frá Eystra-Fróðholti með 9,03 fyrir kosti

  • 28. júní 2012
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Daníel kominn í fimmta gírinn

Mikil dramatík var í síðasta holli í sex vetra flokki hryssna á yfirlitssýningu kynbótahrossa á LM2012. Fyrir lá að Kolka frá Hákoti myndi halda sæti sínu í flokknum frá í forskoðun (8,69) og í fordómi á Landsmótinu. Hún átti eftir að sækja hálfan í tölti sem flestir töldu að hún myndi endurheimta á yfirlitinu. Var með 9,0 fyrir tölt inn á mót og 9,5 fyrir vilja. En það tókst ekki. Knapi sem fyrr Hrefna María Ómarsdóttir.

Daníel Jónsson er hins vegar í miklu stuði þessa dagana og hann sat hryssuna Spá frá Eystra-Fróðholti, sem er alsystir stóðhestsins Arions frá Eystra-Fróðholti, undan Sæ frá Bakkakoti og Glettu frá Bakkakoti, Óðsdóttur frá Brún. Spá kom með 8,52 inn á mót en hækkaði verulega fyrir kosti á yfirlitinu, úr 8,83 í forskoðun í 9,03. Engin smá einkunn það. 9,5 fyrir tölt, vilja og fet, og 9,0 fyrir brokk, fegurð og hægt tölt.

Þessar tvær báru af í sex vetra flokknum og í þetta skiptið var það reynsla og snilldar reiðmennska Daníels sem reið baggamuninn. Snilldin ein að horfa á kauða þegar hann er í fimmta gírnum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link