Fréttir af FEIF þingi
„Ársfundur FEIF var haldinn 5.- 6. febrúar að þessu sinni í Hollandi. Rúmlega 90 fulltrúar frá aðildarlöndum FEIF sóttu fundinn en fundinum var að hluta skipt upp eftir viðfangsefnum og rætt var sérstaklega um ræktun, keppni, mennta- og ungmennamál og frístundareiðmennsku. Afar mikilvægt er fyrir okkur Íslendinga að taka virkan þátt í starfi FEIF en það alþjóðlega samstarf sem er um öll málefni íslenska hestsins er einstakt á meðal hestakynja heimsins.
Á ræktunarleiðtogafundinum var meðal annars til umræðu málefni sem tengjast menntamálum kynbótadómara, skipun dómnefnda, siðareglur kynbótasýninga, nafngiftir hrossa og ýmis málefni tengd WorldFeng. Samþykkt var á fundinum að samræma menntunarkröfur til nýrra kynbótadómara en FEIF-löndin hafa gert mismunandi kröfur til sinna dómaraefna í gegnum tíðina. Samræmdar menntunarkröfur hljóma þannig að dómaraefnin þurfa að búa yfir BSc menntun í búvísindum, hestafræðum eða dýralækningum og hafa m.a. þekkingu á erfða- og kynbótafræði, byggingu hrossa og atferlisfræði. Þá þurfa tilvonandi dómarar að hafa reynslu og hæfni í reiðmennsku. Til að tryggja viðunandi hæfni í reiðmennsku verður prófið sem lagt er fyrir dómaraefnin tvískipt í framtíðinni og mun innihalda bæði mat á hrossum og einnig reiðpróf sem er ætlað að sýna fram á hæfni þeirra í reiðmennsku. Er þetta afar mikilvægt skref sem ræktunarleiðtogar FEIF-landanna vilja nú taka og mun tryggja þekkingu kynbótadómara og fagmennsku til framtíðar. Þá var einnig samþykkt að endurskipuleggja skipan formanna í dómnefndir kynbótasýninga um heim allan. Það verður gert á þann veg að skipaður verður hópur 10-12 dómara og mun valið byggja á reynslu þeirra og þekkingu. Þá verður nauðsynlegt að velja einhvern úr þessum hópi til að gegna formennsku í hverri dómnefnd. Þessi hópur er skipaður til tveggja ára í senn og verður valin af kynbótadómaranefnd FEIF. Þetta er stórt skref í átt að enn betra samræmi í dómstörfum á milli sýninga og landa og tryggir viðunandi reynslu í hverri dómnefnd. Þetta verður til viðmiðunar árið 2016 en reglan árið 2017. Hvað varðar kynbótasýningar var einnig rætt um siðareglur sýninganna en á Íslandi eru í gildi strangari og víðfeðmari siðareglur en í öðrum löndum. Stefnan var sett á að samræmdar reglur muni gilda í öllum löndum árið 2017 en Svíar ríða á vaðið og munu taka íslensku reglurnar í gagnið strax á þessu ári.
Hvað varðar lengd brauta til kynbótasýninga þá hefur reglan verið sú að þær eigi að vera 250-300 metrar að lengd. Þessu var breytt og núna eiga þær bara að vera 250 metrar. Þetta er í anda þess að stytta sprettfærið sem hrossin eru sýnd á og létta verkefnið. Þá var einnig til umræðu þær mismunandi reglur sem gilda um leyfi stóðhesta til ræktunar (utan Íslands) og afkvæmaverðlaun. Ákveðið var að samræma þessar reglur eins og kostur er en þær eru nokkuð mismunandi á milli landa.
Einnig var rætt um nafngiftir hrossa en ákveðið var að öll FEIF-löndin sameinist um að halda í þá hefð að skíra íslensk hross íslenskum nöfnum. Það er reyndar í gildi sú regla fyrir skráningar í WorldFeng að nöfn hross skulu samræmast íslenskri nafnahefð en ákveðið var að herða aðhaldið í kringum þessi mál og er það ekki síst hér á landi sem þess er þörf. Í WorldFeng er nafnabanki með fleiri þúsund nöfnum sem sífellt er í vinnslu og verið að bæta góðum og gildum nöfnum þar inn. Við grunnskráningu hrossa í heimarétt er hægt að skrá nöfn sem eru í nafnabankanum en ef þau eru ekki þar þurfa skrásetjarar WorldFengs að sjá um skráninguna. Þar er því ákveðin sía en gildum nöfnum sem hugmynd kemur um verður svo bætt jafn óðum í bankann.
Þá kynnti Jón Baldur Lorange þá vinnu sem er sífellt í gangi við þróun WorldFengs en stærsta verkefnið á þessu ári er snjalltækjavæðing WorldFengs sem mun bæta aðgengi að honum í spjaldtölvum og snjallsímum. Einnig kynnti Kristín Halldórsdóttir, formaður skrásetjaranefndar WorldFengs, verkefni þeirra nefndar en mikil vinna hefur átt sér stað á undanförnum árum við að samræma vinnubrögð skrásetjara í WorldFeng í öllum FEIF-löndunum.
Að lokum má nefna að Marlise Grimm sem hefur verið ræktunarleiðtogi FEIF undanfarin átta ár, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu í því embætti. Við keflinu tók Inge Kringeland frá Noregi. Þá komu þau nú inní ræktunarnefnd FEIF sem fulltrúar ræktenda Marcus Ljungquist frá Svíþjóð og Frauke Schenzel frá Þýskalandi.“
Þorvaldur Kristjánsson skrifar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH