Ráslisti fyrir fimmgang

  • 18. febrúar 2016
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Vesturlandsdeildin.

Næst verður keppt í fimmgangi í Vesturlandsdeildinni en á föstudagskvöldið verður keppt í Líflands-Fimmgangi í Faxaborg, Borgarnesi. 

Óhætt er að segja að deildin hafi farið vel af stað þegar keppt var í fjórgangi 5. febrúar síðast liðinn. Vel var mætt í Faxaborg og góð stemning myndaðist á pöllunum. Góður rómur var gerður af mótinu, hestkosturinn góður og umgjörðin öll til sóma.

Að loknu fyrsta móti leiðir Berglind Ragnarsdóttir einstaklingskeppnina en skammt undan er Benedikt Þór Kristjánsson og Jakob Svavar Sigurðsson fast á hæla honum. Það er þó ljóst að keppnin er rétt að byrja og engin leið að spá fyrir um framhaldið enda 4 ólíkar greinar eftir.

Ráslisti fyrir Líflands-Fimmgang í Vesturlandsdeildinni.

1 – Jakob Svavar Sigurðsson – Straumur frá Skrúð – Snókur/Cintamani
2 – Iðunn Silja Svansdóttir – Fjöður frá Ólafsvík – Trefjar
3 – Hanne Smidesang – Ægir frá Efri-Hrepp – Snókur/Cintamani
4 – Anna Dóra Markúsdóttir – Hvöss frá Bergi – Berg/Hrísdalur
5 – Styrmir Sæmundsson – Ábóti frá Söðulsholti – Trefjar
6 – Randi Holaker – Þytur frá Skáney – Leiknir
7 – Guðmundur M. Skúlason – Krapi frá Steinum – Eques
8 – Konráð Valur Sveinsson – Forkur frá Laugavöllum – Leiknir
9 – Sigurður Sigurðarson – Þengill frá Þjóðólfshaga 1 – Hjálmhestar
10 – Pernille Lyager Möller – Álfsteinn frá Hvolsvelli – Eques
11 – Siguroddur Pétursson – Syneta frá Mosfellsbæ – Berg/Hrísdalur
12 – Máni Hilmarsson – Prestur frá Borgarnesi – Hjálmhestar
13 – Halldór Sigurkarlsson – Kolbrá frá Söðulsholti – Trefjar
14 – Jón Bjarni Þorvarðarson – Haki frá Bergi – Berg/Hrísdalur
15 – Haukur Bjarnason – Gýgur frá Skáney – Leiknir
16 – Þorgeir Ólafsson – Stirnir frá Ferjubakka 3 – Hjálmhestar
17 – Guðbjartur Þór Stefánsson – Prins frá Skipanesi – Eques
18 – Benedikt Þór Kristjánsson – Váli frá Eystra-Súlunesi – Snókur/Cintamani

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link