Sjóður frá Kirkjubæ endurheimtir heiðurinn
Sjóður frá Kirkjubæ hefur endurheimt stöðu sína í 2007 árganginum af stóðhestum. Hann er nú efstur í 5 vetra flokki stóðhesta á LM2012 eftir fordóm með 8,60 í aðaleinkunn, þar af 8,88 fyrir kosti.
Hann stóð efstur 4 vetra stóðhesta á LM2011 í fyrra með 8,37 í aðaleinkunn, en gerði ekki meira en jafna þá einkunn í forskoðun í vor. Greinilegt var að hann var ekki á fullu dampi og beitt sér ekki af krafti.
Síðan þá hefur Sjóður verið í meðhöndlun hjá Sigurði Jóni Einarssyni, sem notar ýmsar óhefðbundnar aðferðir við hestalækningar, svo sem hnykkingar, Bowen tækni og heilun. Í Bandaríkjunum hefur hestanuddarinn Jim Masterson vakið athygli fyrir aðferð sem hann hefur þróað og hefur Sigurður m.a. verið í námi hjá Masterson.
„Það er engin spurning að Sigurður Jón gerði góða hluti fyrir Sjóð,“ segir Guðmundur Björgvinsson, knapi á Sjóði. Folinn var ekki alveg eins og hann átti að sér að vera í vor og ég ákvað að prófa hvort Sigurður gæti gert eitthvað fyrir hann. Meðhöndlunin virðist alla vega ekki hafa skemmt fyrir. 8,60 er góð einkunn á 5 vetra fola,“ segir Guðmundur.
Sjóður er undan Þyrnirós frá Kirkjubæ og Sæ frá Bakkakoti. Ræktandi og eigandi er Kirkjubæjarbúið á Rangárvöllum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH