Héraðssýningunni á Vinheimamelum er lokið. 136 hross voru sýnd og þar af 124 í fullnaðar dóm. 15 hross náðu inná Landsmót, 6 stóðhestar og 9 merar. Efsta hrossið á sýningunni var Ferna frá Hólum. Þórarinn Eymundsson sýndi Fernu en Ferna er í eigu Hólaskóla. Ferna er undan Hróðri frá Refsstöðum og Þilju frá Hólum. Ferna hlaut 8,91 fyrir kosti og 8,16 fyrir sköpulag en það gerir 8,61 í aðaleinkunn.
Efstur fyrir hæfileika var hann Óskasteinn frá Íbishóli. Magnús Bragi Magnússon sýndi hann en hann er jafnframt eigandi og ræktandi. Óskasteinn er undan Hugin frá Haga I og Ósk frá Íbishóli, fyrstu verðlauna meri með 9,0 fyrir skeið. Óskasteinn hlaut 9,10 fyrir hæfileika og er það fjórða hæsta einkunn sem stóðhestur hefur fengið fyrir hæfileika. Hann hlaut 9,5 fyrir tölt, hægt tölt, skeið og vilja og geðslag. Það er ekki oft sem hestur hækkar á yfirliti bæði um hálfan fyrir skeið og hálfan fyrir hægt tölt og tölt. Þetta er glæsilegur dómur á glæsilegum hesti. Óskasteinn er með 7,74 fyrir sköpulag og 8,56 í aðaleinkunn.
Eldur frá Torfunesi hlaut hæstu sköpulags einkunnina eða 8,61 jafnframt var Eldur með næst hæstu aðaleinkunnina á sýningunni en í aðaleinkunn hlaut hann 8,60 og 8,59 fyrir hæfileika. Eldur er undan Mætti frá Torfunesi og Eldingu frá Torfunesi. Mette Mannseth sýndi Eld en hún hefur verið með Eld í tamningu og þjálfun
Þrjú hross hlutu á sýningunni 8,90 fyrir hæfileika eða hærra. En eins og áður sagði voru það þau Óskasteinn frá Íbishóli og Ferna frá Hólum en einnig fékk Trymbill frá Stóra-Ási 8,92 fyrir hæfileika. Greinilegt er að það er mikið um hæfileikarík hross fyrir norðan.
Meðfylgjandi eru dómar Óskasteins, Fernu og Elds:
IS2005157994 Óskasteinn frá Íbishóli
Microchip: 208224000102526
Colour : 3500 Bay no markings
Breeder : Magnús Bragi Magnússon
Horse owner : Magnús Bragi Magnússon
F.: IS1994166620 Huginn frá Haga I
Ff.: IS1984163001 Sólon frá Hóli v/Dalvík
Fm.: IS1981266003 Vænting frá Haga I
M.: IS1998257686 Ósk frá Íbishóli
Mf.: IS1989165520 Óður frá Brún
Mm.: IS1984257076 Gnótt frá Ytra-Skörðugili
FORSKOÐUNARDÓMUR
Héraðssýning á Vindheimamelum
Measurements (cm): 140 – 129 – 136 – 66 – 142 – 38 – 47 – 44 – 6,5 – 30,0 – 18,0
Measure of hooves: L.fr.: 8,5 – L.h. : 7,3
Conformation : 7,0 – 7,5 – 8,0 – 8,0 – 8,0 – 7,0 – 8,5 – 6,5 = 7,74
Rideability: 9,5 – 9,0 – 9,5 – 7,5 – 9,5 – 9,0 – 8,0 = 9,10
Total : 8,56 Slow tölt: 9,5 Canter: 7,0
Rider: Magnús Bragi Magnússon
IS2007166206 Eldur frá Torfunesi
Microchip: 352098100014664
Colour : 1550 Chestnut with blaze
Breeder : Anna Fjóla Gísladóttir, Karyn B MC Farland, Ræktunarbúið Torfunesi ehf.
Horse owner : Anna Fjóla Gísladóttir, Gísli Baldvin Björnsson, Karyn B MC Farland
F.: IS2002166211 Máttur frá Torfunesi
Ff.: IS1993187449 Markús frá Langholtsparti
Fm.: IS1992266205 Mánadís frá Torfunesi
M.: IS2003266201 Elding frá Torfunesi
Mf.: IS1997184211 Djáknar frá Hvammi
Mm.: IS1998266210 Röst frá Torfunesi
FORSKOÐUNARDÓMUR
Héraðssýning á Vindheimamelum
Measurements (cm): 141 – 131 – 137 – 64 – 144 – 38 – 47 – 45 – 6,7 – 30,5 – 19,0
Measure of hooves: L.fr.: 8,9 – L.h. : 8,7
Conformation : 7,5 – 9,0 – 8,5 – 8,5 – 9,0 – 7,5 – 8,5 – 10,0 = 8,61
Rideability: 9,0 – 9,5 – 7,0 – 8,0 – 9,0 – 9,0 – 8,0 = 8,59
Total : 8,60 Slow tölt: 8,0 Canter: 7,0
Rider: Mette Camilla Moe Mannseth
IS2006258309 Ferna frá Hólum
Microchip: 352098100012705
Colour : 3400 Red bay no markings
Breeder : Hólaskóli
Horse owner : Hólaskóli
F.: IS1995135993 Hróður frá Refsstöðum
Ff.: IS1992135930 Léttir frá Stóra-Ási
Fm.: IS1989235990 Rán frá Refsstöðum
M.: IS1992258300 Þilja frá Hólum
Mf.: IS1981187020 Kolfinnur frá Kjarnholtum I
Mm.: IS1985257801 Þrenna frá Hólum
FORSKOÐUNARDÓMUR
Héraðssýning á Vindheimamelum
Measurements (cm): 137 – 134 – 64 – 137 – 26,5 – 17,5
Measure of hooves: L.fr.: 8,5 – L.h. : 7,6
Conformation : 9,0 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 7,5 – 8,5 – 7,5 – 6,5 = 8,16
Rideability: 9,0 – 9,5 – 8,5 – 8,5 – 9,0 – 9,0 – 8,5 = 8,91
Total : 8,61 Slow tölt: 8,5 Canter: 8,5
Rider: Þórarinn Eymundsson