Anna og Friffi á Akureyri

  • 12. mars 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Fræðslunefnd Léttis stendur fyrir námskeiði.

Dagana 2. og 3. apríl verður reiðnámskeið með Önnu Valdimarsdóttur og Friðfinni Hilmarssyni í Léttishöllinni á Akureyri. Þau kenna saman tveimur knöpum í einu. Áhersla verður lögð á einstaklingsmiðaða kennslu og er tíminn 30 mínútur í senn tvisvar á dag.

Námskeiðið er haldið á vegum Léttis og hafa félagsmenn forgang.

Námskeiðsgjald er 20.000 kr fyrir Léttisfélaga en 25.000 kr fyrir utanfélagsmenn.Tekið er á móti skráningum til 25. mars á netfangið [email protected] Gefa þarf upp nafn og kennitölu þátttakanda ásamt kennitölu greiðanda ef hann er ekki sá sami.

Ef tilskilinn fjöldi (12) næst ekki fellur námskeiðið niður.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fræðslunefnd Léttis.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link