Gæðingamót Spretts

  • 23. maí 2013
  • Fréttir
Gæðingamót Spretts

“Gæðingamót Spretts fer fram dagana 1. – 2. júní nk.

Keppt verður á gæðingavellinum og skeiðbrautinni Andvara megin

Skráning hefst fimmtudaginn 23.maí og fer fram á sportfengur.com og lýkur stundvíslega   á miðnætti  mánudagskvöldið 27.maí  Ekki er tekið við skráningum eftir þann tíma.

Skráningargjöld er 3500 kr. Þeir sem velja millifærslu eru beðnir að senda kvittun á netfangið[email protected]





Boðið verður upp á eftirfarandi flokka

 A-flokk gæðinga
 A-flokk gæðinga áhugamenn
 B-flokk gæðinga
 B- flokk gæðinga áhugamenn
 Ungmenni
 Unglingar
 Börn
 Skeið 100m, 150m

Áhugamenn í A og B flokki ríða með reyndari knöpum en áhugamenn ríða svo sérstök úrslit sunnudaginn 2. júní og þurfa þeir sem ætla að skrá sig í áhugamannaflokk að tilkynna það með því að senda póst á [email protected] (knapi + hestur + keppnisflokkur).

Vinsamlega veitið því athygli að í gæðingakeppni þarf hesturinn að vera í eigu Sprettsfélaga. Keppendur eru beðnir að skoða vel reglur LH sem gilda um þátttöku í gæðingakeppni og þá sérstaklega

 reglur varðandi keppnishesta / réttindi til skráningar

 reglur varðandi fótabúnað, beislisbúnað og útbúnað knapa

 járningar

Mótanefnd vill einnig auglýsa eftir aðstoð við ýmis störf á mótinu, en framgangur mótsins veltur alfarið á góðum stuðningi félagsmanna,“ segir í tilkynningu frá Sprett

 
Meðfylgjandi mynd er tekin af Jónínu Björk Vilhjálmsdóttur, af úrslitum í fimmgangi á íþóttamóti Spretts síðastliðna helgi. Á myndinni er Hans Þór Hilmarsson og Tígulás frá Marteinstungu en þeir sigðurðu með e. 7,05. 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link