Íslandsmót „Flipi er algjör meistari“

  • 16. júlí 2023
  • Fréttir

Myndir: Marta Gunnarsdóttir

Hjördís Halla er Íslandsmeistari í tölti í barnaflokki.

A úrslit í tölti T3 í barnaflokki, í boði HorseDay, voru að klárast og voru það þau Hjördís Halla Þórarinsdóttir og Flipi frá Bergsstöðum sem sigruðu með einkunnina 6.94 og eru Íslandsmeistarar. Þau voru titilverjendur en þau unnu þessa grein líka í fyrra.

„Markmiðið var að ná einum Íslandsmeistaratitli og það gekk upp,“ segir Hjördís Halla eftir sigurinn í tölti en hún og Flipi eru einnig Íslandsmeistarar í gæðingalist. „Það var gaman að keppa í gæðingalist en þetta var í fyrsta sinn sem ég keppi í gæðingalist. Það gekk vel en Flipi er mjög góður í greininni enda er hann algjör meistari og við þekkjum orðið hvort annað svo vel. Hann er kominn með mikla reynslu og við erum alltaf að bæta okkur,“ sagði Hjördís Halla en þau Flipi munu keppa í unglingaflokki á næsta ári.

Í öðru sæti varð Kristín Rut Jónsdóttir á Roða frá Margrétarhofi og í því þriðja Apríl Björk Þórisdóttir á Sikil frá Árbæjarhjáleigu II.

Hægt er að horfa á mótið í beinni á Alendis.is eða inn á Facebooksíðu mótsins

 

May be an image of 8 people, horse and text that says "HorseDay"
Niðurstöður – A úrslit – Tölt T3 – Barnaflokkur
1 Hjördís Halla Þórarinsdóttir / Flipi frá Bergsstöðum Vatnsnesi 6,94
2 Kristín Rut Jónsdóttir / Roði frá Margrétarhofi 6,83
3 Apríl Björk Þórisdóttir / Sikill frá Árbæjarhjáleigu II 6,61
4 Róbert Darri Edwardsson / Samba frá Ásmúla 6,56
5 Eyvör Vaka Guðmundsdóttir / Díva frá Bakkakoti 6,39
6 Kári Sveinbjörnsson / Nýey frá Feti 6,06

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link