Sýnikennsla Guðmars Þórs á fimmtudag

  • 3. janúar 2012
  • Fréttir
Sýnikennsla Guðmars Þórs á fimmtudag

Guðmar Þór Pétursson reiðkennari verður með sýnikennslu fimmtudaginn 5. janúar í nýja Gusti í reiðhöllinni Hamraenda 16-18. Ath. enginn aðgangseyrir.

Guðmar Þór hefur eins og margir þekkja rekið tamningarstöð í Bandaríkjunum til margra ára. Þar hefur hann fengist mikið við kennslu, þjálfun og tamningar á íslenskum hestum, auk þess að kynna sér margskonar reiðmennsku- og þjálfunaraðferðir. Hann á að baki farsælan feril í keppni og þjálfun hérlendis.

Í sýnikennslunni mun Guðmar fjalla um skipulag þjálfunar í upphafi árs og áframhaldandi þjálfun. Einnig mun hann fjalla um líkamsbeytingu og formun. Auk þess mun Guðmar miðla því sem honum er helst hugleikið í reiðmennsku þessa dagana.

Guðmar mun bjóða upp á para eða einkatíma á þriðjudags og fimmtudagskvöldum nú í janúar í reiðhöllinni Hamraenda.

Hægt verður að panta tíma í reiðkennslu hjá Guðmari á staðnum eða í síma 8966726 eða netfangið [email protected].

Allir Gustarar og Andvarafélagar eru sérstaklega hvattir til þess að mæta enginn aðgangseyrir og hefst hún stundvíslega klukkan 20.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link