Álfur er Sleipnisbikarhafi 2012-
Álfur frá Selfossi hlýtur Sleipnisbikarinn á landsmóti 2012. Þegar kynbótamat hefur verið uppfært stendur hann með 125 stig með 59 dæmd afkvæmi. Afkomendur Álfs hafa hreinlega hrúgast í dóm nú í vor, því alls hafa 30 hross bæst á lista afkvæma hans með fullnaðardóm eftir uppfærslu kynbótamats.
Þetta er að sönnu söguleg lok á ferli Álfs hér á Íslandi áður en hann flytur til Noregs. Saga Álfs er orðin þekkt. Hann er Orrasonur fæddur árið 2002 og kemur úr ræktun Olil Amble. Hann er í eigu Christinu Lund sem sýndi móður hans, Álfadísi frá Selfossi, á Landsmóti í Reykjavík árið 2000 en hryssan hlaut einmitt heiðursverðlaun fyrir afkvæmi í fyrra. Hæstan dóm hlaut Álfur á Landsmóti 2006, þá 8,46, og á sl. Landsmóti hlaut hann fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og annað sæti á mótinu. Segir í dómsorðum að hann gefi fríð og reist hross, viljug, þjál og hágeng.
Hryssur raða sér meðal hæst dæmdu afkvæma Álfs sem stendur. Efst á blaði er Álfadrottning frá Austurkoti með 8,53 í aðaleinkunn, næst er heimsmeistari í fimm vetra flokki hryssa, Rauðhetta frá Kommu með 8,52 í aðaleinkunn. Hæst dæmdi stóðhestur undan Álfi er hinn nafntogaði Glymur frá Leiðólfsstöðum, með 8,24 í aðaleinkunn. Þá koma þær Hrefna frá Vatni og Þokkafull frá Hamarshjáleigu næst, báðar með 8,34.
Afkvæmi Álfs með fullnaðardóm:
(Fæðingarnúmer/Nafn/Sköpulag/Kostir/Aðaleinkunn/Aðaleinkunn kynbótmats)
IS2005282657 Álfadrottning frá Austurkoti 8.37 8.64 8.53 121
IS2005265890 Rauðhetta frá Kommu 8.11 8.8 8.52 126
IS2006138450 Glymur frá Leiðólfsstöðum 8.28 8.4 8.35 114
IS2006238377 Hrefna frá Vatni 8.35 8.33 8.34 122
IS2006287794 Þokkafull frá Hamarshjáleigu 8.42 8.28 8.34 111
IS2007184857 Álfsteinn frá Hvolsvelli 7.76 8.44 8.17 115
IS2007276177 Álöf frá Ketilsstöðum 8.06 8.21 8.15 122
IS2006286526 Rauðhetta frá Seli 7.93 8.28 8.14 111
IS2008184860 Prinsinn frá Efra-Hvoli 8.46 7.93 8.14 119
IS2005135701 Álfgrímur frá Gullberastöðum 8.3 8 8.12 116
IS2007187233 Skyggnir frá Stokkseyri 7.71 8.38 8.11 114
IS2006238398 Grýla frá Gillastöðum 8.03 8.13 8.09 117
IS2007235941 Hugrún frá Hellubæ 8.14 8.04 8.08 122
IS2005125086 Kaldi frá Meðalfelli 8.04 8.09 8.07 116
IS2006187242 Vals frá Efra-Seli 7.91 8.18 8.07 118
IS2007157006 Hvítserkur frá Sauðárkróki 8.26 7.93 8.07 121
IS2007201041 Formúla frá Skipaskaga 8.05 8.09 8.07 123
IS2006182650 Hraunar frá Austurkoti 8.07 8.05 8.06 118
IS2007235942 Vesta frá Hellubæ 8.2 7.97 8.06 118
IS2007287870 Snilld frá Reyrhaga 7.87 8.18 8.06 124
IS2007182663 Darri frá Dísarstöðum 2 8.21 7.95 8.05 114
IS2007267050 Álfadís frá Bjarnastöðum 8.07 8.01 8.04 112
IS2008125114 Hákon frá Dallandi 8.09 7.98 8.02 117
IS2008165035 Ás Eyfjörð frá Bakka 8.19 7.91 8.02 117
IS2006282650 Brúða frá Austurkoti 8.19 7.85 7.99 110
IS2006287318 Frigg frá Litlu-Reykjum 8.28 7.8 7.99 113
IS2007182575 Hákon frá Ragnheiðarstöðum 7.7 8.15 7.97 120
IS2006238544 Álfadís frá Magnússkógum 8.07 7.85 7.94 116
IS2007258712 Hvönn frá Dýrfinnustöðum 8.15 7.77 7.92 112
IS2008125426 Ás frá Hofsstöðum 7.93 7.92 7.92 113
IS2008165890 Kapall frá Kommu 8.5 7.54 7.92 118
IS2007284950 Álfrún frá Vindási 7.79 7.98 7.91 117
IS2007225101 Assa frá Mosfellsbæ 7.7 8.03 7.9 115
IS2005155102 Hlekkur frá Lækjamóti 8.09 7.74 7.88 109
IS2006282794 Rönd frá Selfossi 7.69 7.98 7.86
IS2005287438 Tromma frá Glóru 7.7 7.95 7.85 119
IS2008165511 Huldar frá Sámsstöðum 7.98 7.72 7.82 122
SE2005204315 Álfadis från Åleby 7.93 7.75 7.82 111
IS2007187439 Tjaldur frá Glóru 7.66 7.88 7.79 117
IS2008176055 Askur frá Eskifirði 7.81 7.73 7.77 119
IS2007187052 Flaumur frá Auðsholtshjáleigu 7.69 7.8 7.75 117
IS2008137863 Ábóti frá Söðulsholti 7.98 7.58 7.74 116
IS2007176236 Haukur frá Lönguhlíð 8.04 7.47 7.7 116
IS2008166200 Verdí frá Torfunesi 7.93 7.55 7.7 114
IS2008287198 Sending frá Þorlákshöfn 8.18 7.38 7.7 118
IS2007187402 Grani frá Langholti 8 7.49 7.69 111
IS2006255410 Karmen frá Grafarkoti 7.85 7.57 7.68 116
IS2007284540 Iða frá Miðhjáleigu 7.99 7.43 7.66 114
IS2007287322 Prýði frá Laugardælum 7.78 7.58 7.66 116
NO2005208161 Álfrún fra Røkstua 7.83 7.55 7.66 113
IS2005236750 Spurning frá Leirulæk 7.72 7.6 7.65 110
IS2007182799 Ýmir frá Selfossi 7.89 7.49 7.65
IS2007285052 Ástrós frá Hörgslandi II 7.99 7.4 7.64 117
IS2008282899 Fjöður frá Ragnheiðarstöðum 7.24 7.89 7.63 114
IS2008137726 Hylur frá Miðhrauni 7.74 7.5 7.6 117
IS2008265555 Náttdís frá Ytri-Bægisá I 7.74 7.47 7.58 115
IS2006238378 Gæfa frá Vatni 7.63 7.52 7.56 110
IS2008266971 Sigurrós frá Heiðarbót 8.03 7.25 7.56 113
IS2006225089 Dagný frá Meðalfelli 7.87 7.19 7.46 118
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH