Mest fjölgun í 4.vetra flokki
Alls hafa 139 hryssur náð Landsmótslágmörkum. Flestar eru þær líkt og í fyrra í 5.vetra flokki eða 57 talsins. Alls hafa 15 hryssur náð lágmörkum í elsta flokki , en þær voru 11 í fyrra og 30 hryssur í 6.vetra flokki, en þær voru 35 í fyrra. En mesta fjölgunin er í 4.vetra flokki þar sem 37 hryssur náðu lágmörkum en 16 hryssur í fyrra. Þetta er rúmlega tvöföldun.
Þegar efstu fimm hryssur í hverjum flokk eru skoðaðar þá er hæst dæmda hryssa vorsins úr 6.vetra flokki líkt og hjá stóðhestunum. Það er hestagullið Kolka frá Hákoti með 8,69 í aðaleinkunn. Þetta styður skoðun margra að rétt væri að fella út elsta flokk kynbótahrossa, því að með því uppeldi og tamningu sem nú þekkist eiga að geta sýnt sitt besta 5-6 vetra. Mörg af okkar bestu hrossum hafa hlotið sinn hæsta dóm 5-6 vetra gömul og má þar nefna Tenór frá Túnsbergi, Þórodd frá Þóroddsstöðum, Spuna frá Vesturkoti, Kvist frá Skagaströnd, Óm frá Kvistum, Hrannar frá Flugumýri II og Huginn frá Haga.
Í yngsta flokki hryssna er Þeysdóttirin Erla frá Halakoti efst með 8,26 í aðaleinkunn, en Krákur á tvær hryssur í topp fimm í þeim flokki. Efsta 5.vetra hryssan er Markúsardóttirin Magdalena frá Kommu, en Markús verður sýndur til heiðursverðlauna á Landsmóti komandi. Kolka er sem fyrr sagði efst í flokki 6.vetra hryssna en efsta hryssan í elsta flokki er Álfadrottning frá Austurkoti, en líkt og Markús faðir efstur 5.vetra hryssunnar verður Álfur sæmdur Sleipnisbikarnum sem hæsti stóðhestur til heiðursverðlauna.
Gaman er að sjá að mikil breidd er í ættum þessara hryssna en það eru bara þeir Krákur og Sær sem eiga fleiri en eitt afkvæmi á topp fimm meðal efstu hryssna, en þeir eiga tvær dætur hver. Allar hryssurnar eru undan 1.verðlauna stóðhestum, 11 þeirra undan stóðhestum sem hlotið hafa afkvæma verðlaun. Mæður allar 20 hryssnanna eru sýndar merar utan ein og þar af 14 þeirra með 1.verðlaun og 4 þeirra með góð önnur verðlaun.
Efstu hryssur landsins 2012:
4.vetra hryssur
8.26 Erla frá Halakoti
F: Þeyr frá Akranesi
M: Eva frá Leiðólfsstöðum
8.24 Hnit frá Koltursey
F: Stáli frá Kjarri
M: Kjarnorka frá Sauðárkróki
8.18 Terna frá Auðsholtshjáleigu
F: Aron frá Strandarhöfði
M: Trú frá Auðsholtshjáleigu
8.17 Dagbjört frá Hlemmiskeiði 3
F: Krákur frá Blesastöðum 1A
M: Dröfn frá Nautaflötum
8.14 Karmen frá Blesastöðum 1A
F: Krákur frá Blesastöðum 1A
M: Lokkadís frá Brattholti
8.14 Flauta frá Skúfslæk
F: Glotti frá Sveinatungu
M: Líra frá Hafsteinsstöðum
5.vetra hryssur
8.35 Magdalena frá Kommu
F: Markús frá Langholtsparti
M: Melkorka frá Kommu
8.32 Unun frá Kjartansstöðum
F: Vilmundur frá Feti
M: Snæfríður frá Kjartansstöðum
8.31 Fura frá Hellu
F: Eldjárn frá Tjaldhólum
M: Ösp frá Skammbeinsstöðum 3
8.27 Storð frá Hólum
F: Fjörnir frá Hólum
M: Ösp frá Hólum
8.26 Huldumær frá Herríðarhóli
F: Bragi frá Kópavogi
M: Hera frá Herríðarhóli
6.vetra hryssur
8.69 Kolka frá Hákoti
F: Íkon frá Hákoti
M: Frá frá Hákoti
8.61 Ferna frá Hólum
F: Hróður frá Refsstöðum
M: Þilja frá Hólum
8.52 Spá frá Eystra-Fróðholti
F: Sær frá Bakkakoti
M: Gletta frá Bakkakoti
8.5 Planta frá Skrúð
F: Blær frá Torfunesi
M: Sunna frá Skrúð
8.43 Frásögn frá Dýrfinnustöðum
F: Ísak frá Kirkjubæ
M: Sögn frá Fjalli
7.vetra og eldri hryssur
8.53 Álfadrottning frá Austurkoti
F: Álfur frá Selfossi
M: Snæfríður frá Þóreyjarnúpi
8.5 Djásn frá Hnjúki 2500
F: Þorvar frá Hólum
M: Folda frá Hnjúki
8.49 Gletta frá Þjóðólfshaga 1
F: Huginn frá Haga I
M: Glóð frá Jórvík 2
8.37 Álfarún frá Halakoti
F: Álfasteinn frá Selfossi
M: Oddrún frá Halakoti
8.37 Vala frá Ármóti
F: Sær frá Bakkakoti
M: Glóð frá Akureyri
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH