Athugasemd við fréttaflutning Eiðfaxa
“Mig undrar mjög fréttaflutningur á vef Eiðfaxa af keppninni í 150m skeiðinu í meistardeildinni 23. mars. Í fréttinni er lítið gert úr sigri Veru frá Þóroddsstöðum, sem var þó með langbesta tímann, en aðalfréttin að spretturinn hafi trúlega verið ólöglegur. Ekki veit ég hvað blaðamaðurinn hefur haft fyrir sér í þessu þar sem engin kæra hefur borist, engin kvörtun frá Hinriki Bragasyni um truflun og eins og sjá má á videomynd á Hestafréttum af sprettinum þá er engin truflun af knapanum á Veru sem var Eyjólfur Þotsteinsson. Mér finnst miður að þurfa að horfa upp á svona fréttaflutning á Eiðfaxa, blaði sem ég hef til þessa haft mikil samskipti við og gaman af að lesa,“
segir Kári Arnórson en hann var ekki sáttur við fréttaflutning Eiðfaxa af skeiðkappreiðum meistaradeildar sem fóru fram síðasliðinn laugardag.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH