Afkvæmi Draupnis og Spuna með hæsta meðaltal aðaleinkunnar í ár
Draupnir frá Stuðlum
Í ár voru felldir 891 fullnaðardómar en alls komu 232 stóðhestar og 528 hryssur til fullnaðardóms á árinu. Alls standa 241 stóðhestur að baki sýndum hrossum á Íslandi.
Skýr frá Skálakoti átti flest sýnd afkvæmi á árinu en fimmtán stóðhestar voru með 10 eða fleiri sýnd afkvæmi á árinu og er listi með þeim hér fyrir neðan.
Af afkvæmum þessara fimmtán stóðhesta eru afkvæmi Spuna frá Vesturkoti og Draupnis frá Stuðlum með hæsta meðaltal aðaleinkunnar eða 8,19. Næst í röðinni eru afkvæmi Skýs frá Skálakoti og Hrings frá Gunnarsstöðum með 8,16 í meðaltal. Afkvæmi Hrings eru með hæsta meðaltalið fyrir aðaleinkunn án skeiðs eða 8,43. Síðan koma afkvæmi Draupnis með 8,35 og á eftir þeim eru afkvæmi Vita frá Kagaðarhóli með 8,32 í meðaltal fyrir aðaleinkunn án skeiðs.
Hér fyrir neðan má sjá lista yfir þá fimmtán feður sem áttu flest sýnd afkvæmi á Íslandi árið 2023.
| Fjöldi afkvæma |
Meðal- aldur |
Ae. | Ae. án skeiðs |
|
| Spuni frá Vesturkoti |
21 |
6.0 |
8.19 |
8.20 |
| Draupnir frá Stuðlum |
18 |
5.7 |
8.19 |
8.35 |
| Skýr frá Skálakoti |
37 |
5.8 |
8.16 |
8.28 |
| Hringur frá Gunnarsstöðum |
15 |
5.9 |
8.16 |
8.43 |
| Konsert frá Hofi |
23 |
6.3 |
8.15 |
8.23 |
| Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum |
16 |
5.1 |
8.14 |
8.26 |
| Ölnir frá Akranesi |
13 |
6.1 |
8.14 |
8.27 |
| Trymbill frá Sóra-Ási |
10 |
5.3 |
8.13 |
8.23 |
| Þráinn frá Flagbjarnarholti |
11 |
4.7 |
8.10 |
8.25 |
| Hrannar frá Flugumýri |
17 |
6.2 |
8.07 |
8.21 |
| Viti frá Kagaðarhóli |
15 |
5.9 |
8.07 |
8.32 |
| Skaginn frá Skipaskaga |
18 |
5.6 |
8.05 |
8.07 |
| Óskasteinn frá Íbishóli |
15 |
7.4 |
8.02 |
8.11 |
| Arion frá Eystra-Fróðholti |
14 |
6.1 |
7.99 |
8.14 |
| Hreyfill frá Vorsabæ |
10 |
6.1 |
7.92 |
8.16 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH