A-úrslitum í Fimmgangi ungmenna lokið
A-úrslit í fimmgangi ungmenna á Norðurlandamótinu fóru fram í morgun og áttu Íslendingar tvo knapa þar.
Norðurlandameistari í fimmgangi ungmenna er sænski knapinn Ebba Johannesen á Prins frá Blönduósi með einkunnina 6,50.
Glódís Rún Sigurðardóttir og Glaumur frá Geirmundarstöðum enduðu í fimmta sæti með 6,33. Hulda María Sveinbjörnsdóttir og Hetja frá Árbæ enduðu í 7. sæti með 5,81.
Flottur árangur hjá okkar konum.


Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH