Að stíga á bak vinstra megin

  • 9. desember 2012
  • Fréttir
Að stíga á bak vinstra megin

Nútíma tamning kveður á um að hestur venjist því að stigið sé á bak báðum megin. Sumir vilja hins vegar meina að réttara sé að stíga á bak vinstra megin og er sú venjan í reiðmennsku margra landa. Þessa einkennilegu hefð má rekja til hernaðar. Þegar vopnaðir menn mættust var tryggast að hafa höndina sem sverðinu brá sömu megin og sá var sem á móti kom, og báru flestallir sverð sín í hægri hendi. Með vígalegt sverð í slíðrum á vinstri hlið var ógerningur að stíga á bak nema á vinstri hlið.

 
Af þessari sömu ástæðu má rekja venju vinstri umferðar en hún var við lög á Íslandi til 1968, þótt hægri umferð hafi verið tekin upp um mestalla Evrópu á átjándu öld. Konur sneru nefnilega til vinstri í íslenskum söðlum og ef tvær frúr hefðu mæst í þröngu einstigi og vikið til hægri, hefðu þær átt á hættu að krækja fótunum saman. Því tíðkaðist vinstri hestaumferð.
 
Heimild: Vísindavefur Háskóla Íslands
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link