Að vera öðruvísi
Það er mikið búið að vera að veltast í mér pælingin um að hafa kjark til þess að vera aðeins öðruvísi en aðrir í umhverfi manns, kannski ekki bara kjark heldur líka staðfestu og þolinmæði sennilega.
Málið er að ef þú hefur mjög mikinn metnað í því sem þú gerir, mikla ástríðu og sekkur þér í eitthvert efni af alúð, kannski meira og dýpra en margir aðrir.
Hvort sem það er áhugamál, eða að búa sér til starfsvettvang eða jafnvel starfsframa á þínu sviði þá eru miklar líkur á því að stór hluti fólks í kringum þig eigi ekki eftir að skilja þig, skilur ekki hvað þú ert að gera og hvert þú stefnir.
Það geta verið vinirnir eða nánasta fjölskylda jafnvel og allt þar fram eftir götum.
Fyrir marga getur sú staðreynd haft heilmikil áhrif.
Það getur meira að segja verið að maður lendi í því að fólk í kringum þig verði pínu skeptískt, fari að hálfsannfæra þig um að vera ekkert að gera það sem þú brennur fyrir.
Það getur myndast þrýstingur á þig sem fær þig til þess að efast um þig og það sem þú hefur metnað fyrir.
Ég hef lengi haft alveg gríðarlegan áhuga á „personal development“, og er sennilega hálferfiður að umgangast þegar ég er að pæla mikið.
Hendi fram einhverjum hálfmeltum spurningum, hef skoðun á flestu sem kemur mér eiginlega ekkert alltaf við og svo framvegis.
Ég finn líka oft að ég er að velta fyrir mér hlutum sem mér finnst ægilega mikilvægir en margir í kringum mig skilja ekki baun í mér.
Það getur myndað heilmikinn efa hjá manni,
„Hvað hef ég fram að færa í þessu?“
„Skrifa pistil um þetta bara því þú ert sjálfur eitthvað að spá“
„Hvað heldurðu að þetta hjálpi einhverjum?“
Að standa við það sem maður hefur trú á, og láta ekki hræðslu við að „opna sig“ eða vera aðeins öðruvísi kostar æfingu og kjark.
Það snýst ekki einusinni um að vera ekki hrædd(ur) heldur finna hræðslu en gera það samt!!!!
Allavega, ég rakst á þessa fínu hvatningu hér á myndinni á dagbókinni hennar Betu minnar sem lá á borðinu og langaði þá að deila henni. (Já og ég er ekki svo vitlaus að hafa byrjað að lesa í dagbókinni svo það sé á hreinu)
Ef við viljum breyta stöðunni eins og hún er í dag eru bara
tvær leiðir færar:
1 . Hætta einhverju sem við erum að gera
2. Byrja að gera eitthvað sem við erum ekki að gera.
Að halda áfram að gera það sama í dag eins og í gær og vona að eitthvað breytist er bara „stupid“ 🙂 



Hvenær byrjaðir þú að gera eitthvað nýtt síðast?
Þessi pistill birtist á Facebook síðu minni árið 2019 og ég er enn jafn upptekinn að þessu.
Eigið geggjaða helgi og rock on
Hinni Sig
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH