Að ýmsu er að hyggja við fóðrun reiðhesta
Í jólablaði Eiðfaxa var viðtal við Einar Ásgeirsson. Hann er menntaður með B.sc. gráðu í hestafræðum frá Lbhí og Háskólanum á hólum og með MSc. í Animal Science með áherslu á fóðurfræði frá Landbúnaðarháskóla Svíþjóðar, SLU í Uppsala.
Við fengum hann til þess að koma með nokkra punkta um það hvað þarf að hafa í hyggju við fóðrun reiðhesta. Í janúar blaði Eiðfaxa mun Einar halda áfram að fræða okkur um ýmsa hluti fóðrunar. Tryggðu þér áskrift að næsta tölublaði Eiðfaxa með því að smella hér.
Hér má sjá brot af þeim punktum sem Einar sagði frá í síðasta blaði, lesa má meira í jólablaði Eiðfaxa
Nú þegar fólk er að taka hross á hús, hvað þarf það helst að hafa í huga við fóðrun reiðhestsins?
- Holdastig og almennt heilsufar. Athuga með tennur, orma og lús.
- Hárafar og hnjúskar.
- Hófhirða er gríðarlega mikilvæg. Rétt hófhirða í upphafi vetrar leggur línurnar að því hvernig hófarnir vaxa út frá því í vetur.
- Gefa hóflega fyrstu vikuna til að sporna við fóðurbreytingum, sérlega ef hestarnir hafa ekki verið á gjöf úti.
- Gott gróffóður er undirstaða allrar fóðrunar. Heyefnagreiningar sýna hvað er í fóðrinu, og hvað hesturinn er að fá dags daglega.
- Einstaklingsmiðuð fóðrun, fylgjast vel með hverjum hesti og endurmeta stöðuna reglulega.

Einar Ásgeirsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH