Aðalfundur Gæðingadómara
Jón Þorberg Steindórsson formaður GDLH
Aðalfundur GDLH fór fram í gærkvöldi í húsakynnum ÍSÍ, ágætis mæting var á fundinn og andinn góður. Fyrir utan hefðbundinn fundarstörf sköpuðust miklar umræður um framgang gæðingakeppninnar, en á sama tíma og hún hefur náð miklum vexti á meginlandi evrópu hefur dregið úr mótaframboðum hér heima á Íslandi. Ýmsar hugmyndir komu upp á fundinum um hvað skal til bragðs taka og var nýrri stjórn falið að finna leiðir til að auka hróður þessa íslenska keppnisforms.
GDLH stóð fyrir innanhúsmótum á síðastliðnu ári sem þóttu takast vel og einnig var haldið Meistaramót Íslands í gæðingkeppni sem að er mót sem er vonandi komið til þess að vera.
Erlendur Árnason bauð sig ekki fram til formanns, en hann hefur sinnt því embætti síðastliðið ár. Þá var einnig kosið um laus stjórnarsæti. Jón Þorberg Steindórsson bauð sig fram til formanns og var hann kosinn með lófaklappi.
Stjórn GDLH er þannig skipuð.
Jón Þorberg Steindórsson – Formaður
Ágúst Hafsteinsson
Randi Holaker
Sigurður Sigurðarson
Reynir Örn Pálmason
Varastjórn
Darri Gunnarsson
Jóhann G. Jóhannesson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH