Aðalfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands
Aðalfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands verður á morgun, miðvikudagskvöld 28. mars kl. 20:30 í Hliðskjálf félagsheimili hestamannafélagsins Sleipnis á Selfossi.
Dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf. Úr stjórn eiga að ganga Ólafur Einarsson en hann gefur ekki kost á sér áfram og Sigrík Jónsson en hann gefur kost á sér áfram. Gestur fundarins verður að þessu sinni Guðmar Þór Pétursson en hann hefur lengi unnið að markaðsmálum í Ameríku.
Rétt er að benda á að fundargerðir stjórnar eru aðgengilegar á slóðinni www.bssl.is en þar eru Hrossaræktarsamtökin með síðu. Vonumst til að sjá ykkur sem flest á aðalfundinum.
Stjórn Hrossaræktarsamtaka Suðurlands
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH