Aðrir vetrarleikar Spretts

  • 14. mars 2013
  • Fréttir
Aðrir vetrarleikar Spretts

Aðrir vetrarleikar ársins hjá hestamannafélaginu Spretti á Kjóavöllum fara fram á laugardaginn kemur, 16. mars. Mótið er hluti af þriggja móta vetrarmótaröð þar sem keppt er einu sinni á hringvelli (lokið), einu sinni inni í reiðhöll og einu sinni á beinni braut. Að þessu sinni fer mótið fram inni í reiðhöllinni (Andvara) og hefst keppni kl. 13. 

Skráning fer fram á milli klukkan 11 og 12 í félagsheimilinu á Kjóavöllum og eru skráningargjöld eftirfarandi: Pollar frítt, börn kr. 500, unglingar kr. 1.000, aðrir flokkar kr. 1.500.
 
Mótið er eingöngu ætlað skuldlausum félagsmönnum í Hmf. Spretti. Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka. Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka ef ekki er næg skráning í einhvern þeirra.
 
Eftirtaldir flokkar verða í boði:
 
Pollar – teymdir
Pollar sem ríða sjálfir – styrktir af Holtabrún hrossarækt
Barnaflokkur – styrktur af Bílamálun Halldórs
Unglingaflokkur – styrktur af Traðarlandi
Ungmennaflokkur – styrktur af Hestum ehf.
Heldri menn og konur 50+ – styrkt af Boðtækni
Konur 2 minna vanar – styrktar af ALP/GÁK
Karla 2 minna vanir – styrktir af Vögnum og þjónustu
Konur 1 meira vanar – styrktar af Frjó Quatro
Karlar 1 meira vanir – styrktir af ÓP Verk ehf.
Opinn flokkur – styrktur af Íslandsbanka
 
Keppendur safna stigum á öllum þremur mótunum og í lok mótaraðarinnar verða stigahæstu knapar í hverjum flokki verðlaunaðir sérstaklega.
 
Mótanefnd Spretts hvetur félagsmenn til að fjölmenna og taka þátt í skemmtilegu móti þar sem allir ættu að finna flokka við sitt hæfi! Sjáumst á laugardaginn!,“ segir í tilkynningu frá nefndinni

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link