Æfingamót fyrir upprennandi stjörnur
Rangárhöllin á Hellu mun halda fjórgangskeppni sunnudaginn 13. febrúar kl. 14 ef næg þáttaka verður.
„Þetta er íþróttakeppni og verður einungis keppt í einum flokki og er einn inná í einu, þannig að hver og einn ræður því hvernig hann vill ríða sitt prógram. Það verða fimm dómarar, þannig að það verður meistarabragur á þessu. Þetta er opið öllum sem vilja. Allir hafa einhverjar upprennandi stjörnur undir höndum sem gott er að taka eitt prufumót á og sjá hvernig þeir hestar standast samanburð. Þannig að gaman verður að sjá hvort það komi ekki einhverjar nýjar stjörnur fram sem eiga svo eftir að gera það gott á keppnisvellinum,“ segir í fréttatilkynningu frá Rangárhöllinni.
Skráningu skal senda á netfangið [email protected] og er lokafrestur skráningar Í KVÖLD fimmtudagskvöld 10. febrúar kl 23:59. Skráningargjaldið er 2.500 kr. á hest og greiðist inn á 1169-26-2212 og kt:221272-4719, senda kvittun á netfangið [email protected], lokafrestur greiðslu er 10. febrúar kl 23:59. Upplýsingar sem þurfa að koma fram er kennitala og nafn knapa, IS-númer, nafn og uppruna hests.
Aðgangseyrir inn á mótið er 500 kr., frítt er fyrir börn 12 ára og yngir, einnig er frítt fyrir knapa.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH