Æfingar fullorðinna í reiðhöllum ennþá óheimilar
Skipulögð námskeið barna fædd 2005 og síðar geta nú hafist að nýju
Uppfærðar sóttvarnarreglur taka gildi í dag 18.nóvember og gilda til 1.desember. Nýjar sóttvarnarreglur taka einnig gildi fyrir hestaíþróttir eins og blaðamaður Eiðfaxa kynnti sér á vef LH.
Núna geta æfingar barna og ungmenna sem eru fædd 2005 og síðar hafist að nýju en keppni er þó ekki heimil að svo stöddu. Ljóst er því að skipulagðir reiðtímar geta hafist í reiðhöllum landsins fyrir þennan aldursflokk.
Reiðhallir hestamannafélaga eiga þó að áfram að vera lokaðar fyrir almenna reiðmenn því æfingar fullorðinna í reiðhöllum eru óheimilar.
Telja má líklega að hestamannafélög landsins fari aftur af stað með skipulagt barna og unglingastarf nú þegar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH