Æsispennandi töltkeppni var lokagrein dagsins á Flúðum

  • 25. júlí 2020
  • Fréttir

Ragnhildur Haraldsdóttir stóð efst í tölti mynd: Bára Másdóttir

Keppni hélt áfram á Flúðum í dag þar sem fram fer nú opið Gæðingamót. Blaðamaður Eiðfaxa dvaldi á svæðinu í dag og fylgdist með keppni en það má með sanni segja að stemningin á meðal keppenda og áhorfenda sé góð og að þetta mót sé að skipa sér sess sem eitt af skemmtilegustu mótum ársins að minnsta kosti hér sunnan heiða.

Keppt var í forkeppni í A-flokki gæðinga, A-flokki áhugamanna og A-flokki ungmenna. Þá fór einnig fram forkeppni í B-flokki og A-úrslit í þremur töltgreinum í kvöld.

Keppni í úrslitum í tölti var spennandi í öllum flokkum. í tölti 18 ára og eldri voru í húfi 100.000 krónur sem helstu styrktaraðilar mótsins Dýralæknirinn á Flúðum. og Gröfutækni gáfu. Sætaröðun dómara þurfti til að skera úr um sigurvegara en það fór svo að Ragnhildur Haraldsdóttir og Úlfur frá Mosfellsbæ fóru heim með verðlaunaféð.

 

Hulda María Sveinbjörnsdóttir sigraði keppni í tölti 17 ára og yngri á Garpi frá Skúfslæk og Sölvi Þór Oddrúnarson vann tölt T7 barna á Leik frá Mosfellsbæ.

Úrslitaknapar í Tölti T7 barna

Í A-flokki gæðinga er það Katalína frá Hafnarfirði sem efst stendur en knapi hennar er Sólon Morthens, frábær jafnvíg alhliða hryssa. Í A-flokki áhugamanna er það Kraftur frá Breiðholti í Flóa sem efstur stendur og knapi hans er Hafdís Arna Sigurðardóttir.

Sólon Morthens og Katalína frá Hafnarfirði áttu góðan dag

Í B-flokki gæðinga er það Frár frá Sandhóli sem leiðir en sýnandi hans var Þór Jónsteinsson í B-flokki áhugamanna er efstur Óskar-Þór frá Hvítárholti og Guðrún Margrét Valsteinsdóttir.

Frár frá Sandhóli er efstur í B-flokki gæðinga fyrir úrslit

 

Óskar-Þór frá Hvítárholti er efstur í B-flokki áhugamanna

Hulda María Sveinbjörnsdóttir er efst í A-flokki ungmenna á Björk frá Barkarstöðum.

Á morgun fara fram A-úrslit í öllum flokkum gæðingakeppninnar

A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Sölvi Þór Oddrúnarson Leikur frá Mosfellsbæ 6,42
2 Þórhildur Helgadóttir Kornelíus frá Kirkjubæ 6,33
3 Eik Elvarsdóttir Eik frá Hólateigi 6,25
4 Þórhildur Lotta Kjartansdóttir Nói frá Kópavogi 5,83
5 Eyþór Ingi Ingvarsson Bliki frá Dverghamri 5,58

 

A úrslit tölt 17 ára og yngri
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Hulda María Sveinbjörnsdóttir Garpur frá Skúfslæk 7,06
2 Elva Rún Jónsdóttir Roði frá Margrétarhofi 6,78
3 Sigurbjörg Helgadóttir Elva frá Auðsholtshjáleigu 6,72
4 Guðný Dís Jónsdóttir Straumur frá Hofsstöðum, Garðabæ 6,67
5 Þorbjörg H. Sveinbjörnsdóttir Ísó frá Grafarkoti 6,44
6 Védís Huld Sigurðardóttir Megas frá Seylu 6,33

 

A úrslit Tölt 18 ára og eldri
Sæti Knapi Hross Einkunn
1-2 Sólon Morthens Katalína frá Hafnarfirði 7,78
1-2 Ragnhildur Haraldsdóttir Úlfur frá Mosfellsbæ 7,78
3-4 Sigurður Sigurðarson Rauða-List frá Þjóðólfshaga 1 7,67
3-4 Elvar Þormarsson Katla frá Fornusöndum 7,67
5 Hekla Katharína Kristinsdóttir Lilja frá Kvistum 7,33
6 Viðar Ingólfsson Rauðka frá Ketilsstöðum 7,22
A flokkur ungmenna
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Hulda María Sveinbjörnsdóttir Björk frá Barkarstöðum 8,26
2 Kristján Árni Birgisson Rut frá Vöðlum 8,25
3 Sigurður Steingrímsson Ýmir frá Skíðbakka I 8,24
4 Jón Ársæll Bergmann Vonar frá Eystra-Fróðholti 8,24
5 Hekla Rán Hannesdóttir Halla frá Kverná 8,12
6 Kári Kristinsson Bruni frá Hraunholti 7,98
7 Arndís Ólafsdóttir Dáð frá Jórvík 1 7,95
8 Matthías Sigurðsson Kötlukráka frá Dallandi 7,90
9 Þorvaldur Logi Einarsson Sóldögg frá Miðfelli 2 7,75
10 Herdís Björg Jóhannsdóttir Vösk frá Vöðlum 7,71
11 Stefanía Vilhjálmsd. Reykdal Embla frá Lækjarhvammi 7,33
12 Þórey Þula Helgadóttir Melkorka frá Hvammi I 0,00

 

B-dlokkur
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Frár frá Sandhól Þór Jónsteinsson 8,62
2-3 Nótt frá Miklaholti Þórarinn Ragnarsson 8,55
2-3 Njörður frá Flugumýri II Eyrún Ýr Pálsdóttir 8,55
4 Flugar frá Morastöðum Anna Björk Ólafsdóttir 8,50
5 Fjalar frá Efri-Brú Sólon Morthens 8,48
6 Rökkvi frá Hólaborg Þorgeir Ólafsson 8,46
7 Draumhyggja frá Eystra-Fróðholti Klara Sveinbjörnsdóttir 8,46
8 Snæþór frá Enni Þórdís Inga Pálsdóttir 8,44
9 Gaukur frá Steinsholti II Sigurður Sigurðarson 8,43
10 Garpur frá Miðhúsum Jóhannes Magnús Ármannsson 8,41
11 Aron frá Þóreyjarnúpi Matthías Kjartansson 8,37
12 Eyða frá Halakoti Jóhannes Magnús Ármannsson 8,36
13 Bjartur frá Hlemmiskeiði 3 Sigursteinn Sumarliðason 8,30
14 Nóta frá Syðri-Úlfsstöðum Súsanna Sand Ólafsdóttir 8,29
15 Sveinsson frá Skíðbakka 1A Birgitta Bjarnadóttir 8,27
16-17 Náttfari frá Kópsvatni Óskar Örn Hróbjartsson 8,26
16-17 Díva frá Bakkakoti Guðmundur Baldvinsson 8,26
18 Hástíg frá Hrafnagili Leó Geir Arnarson 8,25
19 Djákni frá Ormsstöðum Guðjón Sigurðsson 8,10
20 Heiðar frá Kolsholti 3 Þorgils Kári Sigurðsson 8,02
21 Sólsteinn frá Dallandi Sigurður Rúnar Pálsson 2,29
22-24 Sproti frá Ytri-Skógum Nína María Hauksdóttir 0,00
22-24 Hrafn frá Kolsholti 3 Þorgils Kári Sigurðsson 0,00
22-24 Hafrún frá Ytra-Vallholti Marín Lárensína Skúladóttir 0,00
B-flokkur áhugamanna
Forkeppni
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Óskar Þór frá Hvítárholti Guðrún Margrét Valsteinsdóttir 8,35
2 Sveðja frá Skipaskaga Caroline Jensen 8,31
3 Amor frá Reykjavík Bertha María Waagfjörð 8,22
4 Kvika frá Vallanesi Rúna Björg Vilhjálmsdóttir 8,20
5 Náttar frá Hólaborg Emilia Staffansdotter 8,20
6 Sævar frá Ytri-Skógum Jón Ó Guðmundsson 8,16
7 Kappi frá Vorsabæ II Celina Sophie Schneider 8,13
8 Laki frá Hamarsey Edda Eik Vignisdóttir 8,02
9 Bryndís frá Aðalbóli 1 Jón Ó Guðmundsson 7,96
10 Dísa frá Hemlu I Chiara-Noemi Schmid-Bielenberg 7,94
11 Vákur frá Hvammi I Erna Óðinsdóttir 7,86
12 Beitir frá Gunnarsstöðum Kristinn Karl Garðarsson 7,79
13 Rjómi frá Gunnarsstöðum Kristinn Karl Garðarsson 7,67
14 Farsæll frá Litla-Garði Carlien Borburgh 7,42
15 Suðurey frá Skíðbakka III Erlendur Árnason 0,00
A-flokkur
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Katalína frá Hafnarfirði Sólon Morthens 8,58
2 Vörður frá Vindási Þórarinn Ragnarsson 8,57
3 Bjarmi frá Litlu-Tungu 2 Sæmundur Þorbjörn Sæmundsson 8,52
4 Vaka frá Ásbrú Jón William Bjarkason 8,52
5 Myrkvi frá Traðarlandi Ríkharður Flemming Jensen 8,50
6 Sirkus frá Garðshorni á Þelamörk Kristín Magnúsdóttir 8,47
7 Ullur frá Torfunesi Snorri Dal 8,37
8-9 Sæla frá Hemlu II Ragnar Eggert Ágústsson 8,33
8-9 Garún frá Eystra-Fróðholti Hans Þór Hilmarsson 8,33
10-11 Seifur frá Hlíð I Hanna Rún Ingibergsdóttir 8,32
10-11 Stormur frá Björgum 4 Þór Jónsteinsson 8,32
12 Fluga frá Mið-Fossum Viðar Ingólfsson 8,32
13 Valdís frá Ósabakka Daníel Gunnarsson 8,31
14 Rómur frá Þjóðólfshaga 1 Sölvi Sigurðarson 8,31
15 Dagmar frá Kópavogi Adolf Snæbjörnsson 8,30
16 Árvakur frá Dallandi Adolf Snæbjörnsson 8,30
17 Eva frá Reykjadal Jón William Bjarkason 8,29
18 Kolbrún frá Rauðalæk Finnur Jóhannesson 8,28
19 Hjörvar frá Áskoti Finnur Jóhannesson 8,24
20 Hófsóley frá Dallandi Sigurður Rúnar Pálsson 8,07
21 Flosi frá Búlandi Arnar Heimir Lárusson 8,07
22 Nál frá Galtastöðum Óskar Örn Hróbjartsson 7,90
23 Gnúpur frá Dalbæ Sólon Morthens 7,89
24 Frigg frá Varmalandi Guðjón Sigurðsson 7,78
25 Hrímnir frá Hvítárholti Súsanna Sand Ólafsdóttir 7,70
26 Kristín frá Firði Hanna Sofia Hallin 7,56
27 Jarl frá Kolsholti 3 Þorgils Kári Sigurðsson 7,09
28 Heiðdís frá Reykjum Matthías Leó Matthíasson 2,20
A-flokkur Áhugamanna
Forkeppni
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Kraftur frá Breiðholti í Flóa Hafdís Arna Sigurðardóttir 8,28
2 Hruni frá Friðheimum Þórey Helgadóttir 8,19
3 Hamingja frá Vesturkoti Eyrún Jónasdóttir 8,14
4 Glymur frá Hofsstöðum, Garðabæ Jón Ó Guðmundsson 7,93
5 Matthildur frá Stormi Einar Ben Þorsteinsson 7,34

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link