Æskulýðsdagar á Melgerðismelum
Funamenn eru að skipuleggja æskulýðsdaga á Melgerðismelum en fjörið hefst á föstudeginum 20. júlí kl. 20:00 með Ratleik – skipt upp í lið þvert á getu og aldur og margar skemmtilegar stöðvar í boði !
Dagskrá laugardagsins 21. júlí er fjölbreytt:
ÞRAUTABRAUT kl. 11:00, einstaklinskeppni og sitt hvor brautin fyrir eldri og yngri aldursflokk.
REIÐTÚR kl. 14:00 fyrir alla sem getu og vilja hafa, nesti á leiðinni.
GRILLVEISLA kl. 19:00 um kvöldið – verði stillt í hóf fyrir matinn.
VARÐELDUR kl. 21:00 – gítarspil og söngur.
Sunnudagurinn 22. júlí lýkur æskulýðsdögunum með öðruvísi keppni kl.11:00 – skipt í lið og knapar skipta með sér verkum.
Ríðum fram á Melgerðismela…. Heitt á könnunni fyrir aðstandendur. Ókeypis hagagjald fyrir hesta og ókeypis tjaldstæði fyrir fólk. Ekkert þátttökugjald svo það er engin afsökun fyrir að koma ekki. Skráning um netfangið [email protected] (ekki nauðsynlegten gott að hafa hugmynd um þátttöku)
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH