Æskulýðsmót

  • 18. júlí 2013
  • Fréttir
Á MELGERÐISMELUM 26. – 28. JÚLÍ N.K.

Haldið verður æskulýðsmót á Melgerðismelum 26. – 28. júlí n.k. Fyrir alla hestakrakka sem geta dröslað foreldrum sínum með í útilegu :o)

Dagskrá:

Föstudagurinn 26. júlí        

kl. 20:00    RATLEIKUR (hópavinna)
–       mæting við hesthúsin
–       aldrei að vita hvað vex á trjánum…

Laugardagurinn 27. júlí     

kl. 11:00    ÞRAUTABRAUT (einstaklingar)
–       á ytri velli neðan við Funaborg

kl. 14:00   REIÐTÚR upp í Borgarrétt
–       taka ábyrgðarmann með sér

kl. 20:00   GRILL og LEIKIR í Funaborg
–       hamborgarar í boði fyrir krakkana
–       seldir á vægu verði til fullorðinna

Sunnudagurinn 28. júlí

kl. 11:00   ÖÐRUVÍSI KEPPNI (hópavinna)
–       hópurinn skiptir með sér verkum um hver tekur stökkið, brokkið …o.s.frv.

kl. 14:00    VERÐLAUNAAFHENDING  

Engin skráningargjöld – frí tjaldstæði – fríir hagar fyrir hrossin – nesti í boði í reiðtúrnum 

 

Þátttökuskráning í síðasta lagi miðvikudaginn 24. júlí hjá Sigríði í Hólsgerði (S.857-5457/463-1551/[email protected])

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link