Ættmóðir í fremstu röð

  • 21. september 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Von frá Vindheimum er ein öflugasta ræktunarhryssa Evrópu.

Þekktasta afkvæmi Svals frá Glæsibæ hér á landi er án efa gæðingurinn Gýmir frá Vindheimum en færri þekkja systur hans, gæðingamóðurina Von frá Vindheimum. Svalur var sonur Freys frá Flugumýri og Hrafnsdótturinnar Svölu frá Glæsibæ, en hann hlaut sinn hæsta dóm á LM1986 á Gaddstaðaflötum. Stuttu eftir það var hann seldur til Svíþjóðar en fá afkvæmi hans fæddust hér á landi og enn færri urðu hér eftir. Eitt þeirra afkvæma hans sem fæddust hér heima en var seld út ung var Von frá Vindheimum ein farsælasta ræktunarhryssa seinni ára.

Viking fra Österraker er yngsti sonur Vonar til að hljóta dóm. Hann stóð efstur í 6 vetra flokki stóðhesta á HM2015 í Herning. Viking var í vor fyrsti hesturinn fæddur utan Íslands til að hljóta hæfileikadóm yfir 9,00 en hann er mikill hæfileikahestur með 9,5 fyrir hægt tölt, brokk, vilja/ geðslag og fegurð í reið.

Lesið meira um Von frá Vindheimum í nýjasta tölublaði Eiðfaxa. Hægt er að gerast áskrifandi að Eiðfaxa í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link