Af aðalfundi FT

  • 7. desember 2010
  • Fréttir
Af aðalfundi FT

Aðalfundur FT fór fram sl. föstudag á Kænunni í Hafnarfirði. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf og…

rakti Sigrún Ólafsdóttir fjölbreytt starf aðalstjórnar á árinu og Þórarinn Eymundsson, formaður Norðurdeildar flutti skýrslu Norðanmanna. Eftir að skýrsla og reikningar höfðu verið afgreidd flutti Víkingur Gunnarsson, deildarstjóri hrossaræktardeildar við Háskólann á Hólum, kynningu á nýju B.S. námi í reiðmennsku og reiðkennslu. Erindi Víkings var greinargott og lýsti þeim þremur leiðum sem hægt er að fara í náminu, þ.e. hvernig taka má 1. árið sér, ljúka öðru árinu með verknámi og tamningaprófi eða halda áfram á 3. ár og ljúka B.S. gráðu. Einnig minnti hann á sameiginlegt nám Hóla og LbhÍ til B.S. gráðu í hestafræði. Víkingur sagði þá gráðu meira ætlaða þeim sem hafa áhuga á ræktunarlínunni, en námið á Hólum verður sífellt sérhæfðara og innstillt á reiðmennskuþáttinn.
Nokkrar umræður spunnust um erindi Víkings og veltu margir fundarmenn fyrir sér hvort með þessum breytingum væri verið að gengisfella tamningaprófið og verklega þáttinn, en hægt er að ljúka þriggja ára námi núna án þess að fara af staðnum í verknám. Víkingur ítrekaði að með breytingunum væri verið að auka verklega kennslu til muna og þeir nemendur sem ekki kysu að fara í verknám, sem er valmöguleiki, færu samt í verklega þjálfun á tamninga- og þjálfunarstöðvum. Einnig var rætt töluvert um inntökuskilyrðin í skólann, en nú þurfa umsækjendur að vera með stúdentspróf til að komast inn. Víkingur sagði að það sama ætti við um Háskólann á Hólum eins og aðra háskóla, að fólk með umtalsverða reynslu eða hæfni, en án stúdentsprófs, hefði möguleika á að komast inn með því að taka stöðupróf og láta meta þekkingu sína og reynslu. Því væri ekki útilokað fyrir fólk sem ekki er með stúdentspróf að komast inn. Hann sagði námið í stöðugri þróun og markmiðið væri auðvitað alltaf að auka gæðin, ekki draga úr þeim. Að lokum hvatti Víkingur áhugasama til að kynna sér námið enn frekar og fyrri nemendur skólans gætu látið meta nám sitt inn á nýjar háskóla námsbrautir. Hægt er að lesa nánari lýsingar á náminu og námsleiðunum á eftirfarandi slóð:  
http://www2.holar.is/index.php?option=com_content&view=article&id=111&Itemid=123

Starfað var í einni allsherjarnefnd á fundinum og ályktaði hún m.a. um smitvarnarmál, auk þess sem fjallað var um aðild að félaginu og fleira. Kosið var um þrjá stjórnarmenn, úr stjórn gengu þær Herdís Reynisdóttir og Hrefna María Ómarsdóttir, sem ekki gáfu kost á sér áfram, en Marteinn Njálsson gaf kost á sér áfram og var endurkjörinn til tveggja ára. Guðmundur Arnarsson kom nýr inn í aðalstjórn, en hann hefur verið varamaður í stjórn og Sigvaldi Lárus Guðmundsson var einnig kjörinn nýr inn í stjórnina. Sigrún formaður þakkaði fráfarandi stjórnarmönnum gott starf og bauð þá nýju velkomna.

Fundarsókn var nokkuð góð og fundurinn gekk vel, var líflegur og fræðandi. Fundargestir nutu góðra veitinga í matarhléi og lá vel á mannskapnum. Næsta stóra mál á dagskrá FT er 40 ára afmælishátíðin sem er fyrirætluð í febrúar, en að auki verður boðið upp á fróðlega og skemmtilega viðburði á vetrardagskrá félagins víða um land. Fylgist með á vef FT, en þar verða viðburðirnir kynntir er nær dregur.
www.tamningamenn.is
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link