Af afreksverðlaunum HSS og hestaíþróttaráðs Skagafjarðar
Á afmlæisfögnuði HSS í Melsgili laugardagskvöldið 27.nóv voru veittir farandgripir þeim sem sköruðu framúr á síðastliðnu ári. Verðlaunahafar eru eftirfarandi:..
Ófeigsbikarinn – hlýtur hrossaræktarbú ársins. Það voru Hafsteinsstaðir sem vour hlutskarpastir. Er það ekki síst athyglisverður árangur fyrir þær sakir að Hafsteinsstaðir unnu einnig þennan tiltil á síðasta ári og þá á grunni annarra hrossa en í ár en sömu hrossin geta ekki talið til stiga tvisvar hjá því búi sem vinnur. Í ár skipti sköpum glæsilegur árangur Hafsteinsstaðahrossanna á Íslandsmóti en 6 hross frá búinu kepptu þar til úrslita og þar á meðal varð Drífa Íslandsmeistari.
Sörlabikarinn – veittur hæst dæmda kynbótahrossinu. Þar stóð langefst Þóra frá Prestsbæ með 8,72 í aðaleinkunn.
Kraftsbikarinn – veittur þeim sýnanda kynbótahrossa búsettum í Skagafiðri sem bestum árangri hefur náð á árinu. Bjarni Jónasson hluta þá viðurkenningu, annað árið í röð. Bjarni sýndi 28 hross á árinu, 18 af þeim náðu yfir 8 í aðaleinkunn og mörg með mjög háa hæfileikaeinkunnir, þar á meðal Vænting frá Brúnastöðum (8,85), Gáta frá Ytra-Vallholti (8,70) og Djásn frá Hnjúki (8,51).
Hestaíþróttamenn ársins:
Barnaflokki – Ásdís Ósk Elvarsdóttir
Unglingaflokki – Steindóra Smáradóttir
Ungmennaflokki – Sigurður Pálsson
Fullorðinsflokki – Þórarinn Eymundsson.
www.horse.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári