Af kostum
Kostum gæddir gæðingar sýndu sitt besta á kynbótabrautinni í ár og stórar tölur féllu þegar kveðið var upp dóm á þeim. Fjórir hestar hlutu einkunnina 10 fyrir einn eiginleika hæfileikadóma en fjölmargir voru nálægt fullkomnun. Hér kemur örlítið yfirlit yfir hæstu einkunnir ársins fyrir kosti.
Hæstu hæfileikadómar ársins:
1. Hrannar frá Flugumýri II
F. Kraftur frá Bringu
M. Hending frá Flugumýri
Héraðssýning Selfossi
Sýnandi: Þorvaldur Árni Þorvaldsson
Dómur:
Tölt 9.5
Brokk 9.5
Skeið 9
Stökk 8.5
Vilji og geðslag 9.5
Fegurð í reið 9
Fet 8
Hæfileikar 9.16
Hægt tölt 9
Hægt stökk 8.5
2. Óskasteinn frá Íbishóli
F. Huginn frá Haga I
M. Ósk frá Íbishóli
Landsmót 2012 – Reykjavík
Sýnandi: Magnús Bragi Magnússon
Dómur:
Tölt 9.5
Brokk 8.5
Skeið 9.5
Stökk 8
Vilji og geðslag 10
Fegurð í reið 9
Fet 7.5
Hæfileikar 9.12
Hægt tölt 9.5
Hægt stökk 8
3. Spá frá Eystra-Fróðholti
F. Sær frá Bakkakoti
M. Gletta frá Bakkakoti
Landsmót 2012 – Reykjavík
Sýnandi: Daníel Jónsson
Dómur:
Tölt 9.5
Brokk 9
Skeið 8
Stökk 8.5
Vilji og geðslag 9.5
Fegurð í reið 9
Fet 9.5
Hæfileikar 9.03
Hægt tölt 9
Hægt stökk 8.5
4. Trymbill frá Stóra-Ási
F. Þokki frá Kýrholti
M. Nóta frá Stóra-Ási
Landsmót 2012 – Reykjavík
Sýnandi: Gísli Gíslason
Dómur:
Tölt 9
Brokk 8.5
Skeið 10
Stökk 8.5
Vilji og geðslag 9.5
Fegurð í reið 9
Fet 7
Hæfileikar 9.01
Hægt tölt 9
Hægt stökk 7.5
5. Arion frá Eystra-Fróðholti
F. Sær frá Bakkakoti
M. Gletta frá Bakkakoti
Landsmót 2012 – Reykjavík
Sýnandi: Daníel Jónsson
Dómur:
Tölt 9.5
Brokk 8
Skeið 9
Stökk 8.5
Vilji og geðslag 9.5
Fegurð í reið 9
Fet 7.5
Hæfileikar 8.94
Hægt tölt 9
Hægt stökk 8
Ekkert hross hlaut 10 fyrir tölt en sextán hross hlutu einkunnina 9,5, þrjú á sýningum erlendis og sex á Landsmóti.
9,5 fyrir tölt:
- Óskadís frá Habichtswald
- Fagur frá Limfjorden
- Halfdan frá Engholm
- Njáll frá Hvolsvelli
- Óskar frá Blesastöðum 1A
- Glaðdís frá Kjarnholtum 1
- Óskasteinn frá Íbilshóli
- Hrannar frá Flugumýri II
- Magni frá Hólum
- Þrumufleygur frá Álfhólum
- Sólon frá Vesturkoti
- Spá frá Eystra-Fróðholti
- Viti frá Kagaðarhóli
- Arion frá Eystra-Fróðholti
- Fura frá Hellu
- Mónika frá Miðfelli 5
Engin hlaut heldur fullt hús stiga fyrir brokk en sex hross hlutu einkunnina 9,5.
- Vafi frá Ysta-Mói
- Blær frá Miðsitju
- Hrannar frá Flugumýri II
- Þrumufleygur frá Álfhólum
- Ferna frá Hólum
- Eldur frá Torfunesi
Tveir stóðhestar fengu 10 fyrir skeið á árinu, þeir Trymbill frá Stóra-Ási og Flugnir frá Ketilsstöðum. Þau eru svo hvorki fleiri né færir en 26, hrossin sem hlutu 9,5 fyrir skeið á árinu, átta þeirra á sýningum erlendis og átta tóku sprettinn á Landsmóti.
9,5 fyrir skeið:
- Ragnar frá Klenkenborstel
- Ísleifur frá Liperthof
- Geysir frá Canada
- Ábóti frá Síðu
- Máttur frá Leirubakka
- Seiður frá Flugumýri II
- Gletta frá Þjóðólfshaga 1
- Kaldi frá Meðalfelli
- Ómur frá Laugavöllum
- Óskasteinn frá Íbishóli
- Blær frá Miðsitju
- Hera frá Árbæ
- Patrik frá Reykjavík
- Gróði frá Naustum
- Ormur frá Framnesi
- Þeyr frá Holtsmúla 1
- Penni frá Eystra-Fróðholti
- Rós frá Stokkseyrarseli
- Farfús frá Langsstöðum
- Ægir frá Efri-Hrepp
- Ásgerður frá Horni I
- Hremming frá Skeiðvöllum
- Runi frá Bråtorps gård
- Pjakkur frá Emmigården
- Þrá frá Dirhuvud
- Gná frá Dahlgården
Sex hestar sýndu stökk svo til fullkomnlega. Þau Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum, Kapall frá Kálfholti, Opna frá Feti, Kristall frá Auðsholtshjáleigu, Glæsir frá Gut Vertheim og Katla frá Legind fengu öll einkunnina 9,5.
Einn hestur, Óskasteinn frá Íbishóli, fékk einkunnina 10 fyrir þann eftirsótta eiginleika, vilja og geðslag. Þau sem fengu 9,5 eru:
- Straumur frá Sauðárkróki
- Óskar frá Blesastöðum 1A
- Glaðdís frá Kjarnholtum I
- Trymbill frá Stóra-Ási
- Flugnir frá Ketilsstöðum
- Gróði frá Naustum
- Hrannar frá Flugumýri
- Þrumufleygur frá Álfhólum
- Spá frá Eystra-Fróðholti
- Kolka frá Hákoti
- Viti frá Kagaðarhóli
- Sjóður frá Kirkjubæ
- Arion frá Eystra-Fróðholti
- Kristall frá Auðsholtshjáleigu
Enginn fékk 10 fyrir fegurð í reið en fimm hross fengu einkunnina 9,5:
- Gjafar frá Hvoli
- Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum
- Korgur frá Ingólfshvoli
- Fura frá Hellu
- Álfhildur frá Syðri-Gegnishólum
Það er ekki gengið að því að fá fullt hús stiga fyrir fet, ekkert hross hlaut 10 fyrir þann eiginleika á árinu. Hins vegar hlutu ellefu hross 9,5:
- Sokki frá Omø
- Freyja frá Efri-Rauðalæk
- Narri frá Vestri-Leirárgörðum
- Stefnir frá Þjóðólfshaga 1
- Grímur frá Efsta-Seli
- Gramur frá Syðri-Gegnishólum
- Skriða frá Bergi
- Spá frá Eystra-Fróðholti
- Askja frá Kílhrauni
- Álfasteinn frá Hvolsvelli
- Herjann frá Lian
Óskar frá Blesastöðum 1A fékk einn einkunnina 10 fyrir hægt tölt á árinu en fyrir utan hann hafa aðeins tvö hross hlotið fullt hús stiga síðan farið var að gefa sérstaka einkunn fyrir hægt tölt, Lyfting frá Bjarjastaðahlíð og Tígull frá Kleiva.
Þau sem fengu 9,5 fyrir hægt tölt á árinu eru:
- Óskadís vom Habichtswald
- Óskasteinn frá Íbishóli
- Gjafar frá Hvoli
- Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum
- Korgur frá Ingólfshvoli
Engin fékk 10 fyrir hægt stökk en þrjú hross fengu 9,5. Þau Óskadís vom Habichtwald, Korgur frá Ingólfshvoli og Fjöður frá Akureyri.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH