Af nógu er að taka – Dagskrá helgarinnar
Dagskrár hestamannafélagana er farin hressilega af stað, eins og sést í Viðburðardagatali okkar.
Vert er að minna á sýnikennslu Þórarins Eymundssonar tamningameistara sem hefst núna kl. 20 í reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki.
Nokkur smalamót verða haldin í síðari hluta vikunnar og um helgina.
Á fimmtudagskvöld kl. 18.30 verður fyrsta vetrarmót hestamannafélagsins Grana á Hvanneyri að Mið-Fossum í Borgarfirði. Á föstudagskvöld kl. 18 verður mót í reiðhöll Glaðs í Búðardal og á laugardaginn kl. 13 verður mót í Herði í Mosfellsbæ. Smalamót eru stórskemmtileg áhorfs, en í þeim þurfa keppendur að kljást við uppsetta þrautabraut.
Á laugardag verða einnig haldnar tvær folaldasýningar. Annars vegar í reiðhöll Sleipnismanna á Selfossi og hins vegar í reiðhöll Andvara að Kjóavöllum í Garðabæ.
Af fjölbreytilegum viðburðum helgarinnar að dæma ættu allir hestamenn að finna eitthvað við sitt hæfi, þyrsti þeim í afþreyingu eftir helgarreiðtúrana.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH