Af sköpulagi

  • 18. desember 2012
  • Fréttir
Af sköpulagi

Ræktunarmarkmið fyrir íslenska hrossakynið kveður á um að rækta skuli hina léttbyggðari gerð íslenska hestsins með mikilli áherslu á styrk, skrokkmýkt og vöðvastælta líkamsbyggingu. Sköpulagið á að stuðla að mikilli ganghæfni og eðlisgóðum höfuðburði og á sama tíma að taka mið af almennt viðurkenndum fagurfræðilegum þáttum. Í ár kom fjöldi glæsilegra hrossa fram í kynbótadómum en 34 hross hlutu einkunnina 8,5 eða hærra fyrir sköpulag. 

Af fimmtán hæst dæmdu hrossum fyrir sköpulag eru fimm fædd erlendis, þrjú í Svíþjóð.  Þó hin tíu séu íslenskfædd eru tveir hæst dæmdu stóðhestarnir í notkun erlendis, Grandi frá Skipaskaga og Feykir frá Háholti, og sá fyrrnefndi er í Svíþjóð. Styrkir það málflutning Ágústs Sigurðssonar frá aðalfundi Félags hrossabænda, þar sem hann sagði að Svíar hafi nú þegar tekið fram úr Íslendingum hvað varðar erfðaframfarir sköpulags í hrossastofninum.

Hryssurnar virðast skora hærra þegar litið er í einstaka þætti sköpulagsdóms. Á meðan prúðleikshrossum fjölgar virðist áhersla á réttleiki fóta fara dvínandi.

 
Fimm hæst dæmdu hross fyrir sköpulag á árinu 2012:
1. Von fra Gultentorp
F. Stefnir frá Sandhólaferju
M. Fluga frá Bræðratungu
FIZO Osterbyholz
Sköpulag
Höfuð 8
Háls/herðar/bógar 9.5
Bak og lend 8
Samræmi 9.5
Fótagerð 9
Réttleiki 8
Hófar 8.5
Prúðleiki 8.5
Sköpulag 8.9
 
2. Frásögn frá Dýrfinnustöðum
F. Ísak frá Kirkjubæ
M. Sögn frá Fjalli
Landsmót 2012 – Reykjavík
Sköpulag
Höfuð 8.5
Háls/herðar/bógar 9.5
Bak og lend 9.5
Samræmi 9
Fótagerð 8.5
Réttleiki 8
Hófar 8.5
Prúðleiki 8.5
Sköpulag 8.88
 
3. Grandi frá Skipaskaga
F. Gári frá Auðsholtshjáleigu
M. Kvika frá Akranesi
Romme
Sköpulag
Höfuð 8.5
Háls/herðar/bógar 9
Bak og lend 8
Samræmi 9
Fótagerð 9
Réttleiki 8
Hófar 9.5
Prúðleiki 8
Sköpulag 8.85
 
4. Feykir frá Háholti
F. Andvari frá Ey I
M. Efling frá Háholti
Herning I
Sköpulag
Höfuð 8
Háls/herðar/bógar 9
Bak og lend 8.5
Samræmi 9
Fótagerð 8.5
Réttleiki 8
Hófar 9
Prúðleiki 8.5
Sköpulag 8.72
 
5. Mozart från Sundsberg
F. Ísar frá Keldudal
M. Vor från Österåker
Romme SM
Sköpulag
Höfuð 7.5
Háls/herðar/bógar 9
Bak og lend 9
Samræmi 9
Fótagerð 8.5
Réttleiki 8
Hófar 9
Prúðleiki 7.5
Sköpulag 8.68
 
 
 
Ekkert hross hefur þótt svo fallegt að hljóta einkunnina 10 fyrir höfuð en í ár fengu fjórar hryssur einkunnina 9,5.
  • Ólga frá Fróni
  • Mirra frá Vindheimum
  • Vigdís frá Naustum III
  • Sif frá Helgastöðum 2
 
Aldrei hefur hross heldur hlotið 10 fyrir háls/herðar/bóga en í ár hlutu sex hryssur einkunnina 9,5.
  • Von frá Gultentorp
  • Brynglóð frá Brautarholti
  • Kempa frá Austvarðsholti 1
  • Frásögn frá Dýrfinnustöðum
  • Opna frá Feti
  • Hringrás frá Hrafnagili
 
Einn hestur hefur hlotið einkunnina 10 fyrir bak og lend í sögunni. Það er Stikill frá Skrúð sem hefur hlotið fullt hús stiga á fimm sýningum, en hann er staddur í Þýskalandi. Í ár hlutu hins vegar níu hross einkunnina 9,5 fyrir eiginleikann og eru hryssur þar í miklum meirihluta:
  • Kveðja frá Korpu
  • Gjóska frá Kvistum
  • Frásögn frá Dýrfinnustöðum
  • Herma frá Hryggstekk
  • Kolka frá Hákoti
  • Gáta frá Bræðratungu
  • Viti frá Kagaðarhóli
  • Skýr frá Skálakoti
  • Gleði frá Knutshyttan
 
Þau eru svo fjögur, hrossin sem hlutu 9,5 fyrir samræmi.
  • Von frá Gultentorp
  • Lord frá Vatnsleysu
  • Fura frá Stóru-Ásgeirsá
  • Kolskeggur frá Kjarnholtum I
 
Rán frá Þorkelshóli 2 kemst svo á lista fimm hrossa sem hafa hlotið 10 fyrir fótagerð í sögunni.  Níu hlutu einkunnina 9,5.
  • Olafur frá Oren
  • Kostur frá Skagaströnd
  • Dropi frá Skammbeinsstöðum 3
  • Von frá Varmalæk
  • Álfarún frá Halakoti
  • Hátíð frá Syðra-Fjalli I
  • Opna frá Feti
  • Hrafn frá Vöðlum
  • Hamren frá Skjóðu
 
Þá hlaut enginn heldur fullt hús stiga fyrir hófa en þrettán hlutu 9,5:
  • Ljóni frá Ketilsstöðum
  • Grandi frá Skipaskaga
  • Helgi frá Neðri-Hrepp
  • Kubbur frá Læk
  • Selur frá Horni I
  • Fálmar frá Ketilsstöðum
  • Máni frá Þorlákshöfn
  • Þórdís frá Björgum
  • Vestri frá Síðu
  • Sproti frá Enni
  • Skvisa frá Hocksbo
  • Divar frá Lindäs
  • Stefnir frá Lilla Sträckås
 
Ekkert hross hlaut einkunninar 10 né 9,5 fyrir réttleika á árinu en tuttugu hross hlutu 9,0. Hins vegar kom fjöldi prúðleikshrossa fram en alls hlutu átta einkunnina 10 fyrir prúðleika og 25 fengu 9,5. 
10 fyrir prúðleika:
  • Eiður frá Kronshof
  • Víðar frá Guldbæk
  • Kostur frá Skagaströnd
  • Vafi frá Ysta-Mói
  • Bútur frá Víðivöllum fremri
  • Víkingur frá Ási 2
  • Eldur frá Torfunesi
  • Tenor frá Konga
 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link