„Áfall að verða vitni að þeirri meðferð sem sést í myndbandinu“
Stjórn Félags hrossabænda sendi frá sér yfirlýsingu í morgun þar sem þeir krefja MAST um að upplýsa hvernig eftirliti sé háttað og svari því hver beri ábyrgð á þeirri stöðu sem upp er komin varðandi blóðtökur úr fylfullum hryssum. Yfirlýsingin kemur í kjölfar myndbands sem sýnir að þeirra mati óásættanlega framkomu og fordæmanleg vinnubrögð.
„Félag Hrossabænda harmar og fordæmir þau vinnubrögð sem viðhöfð voru og sjást á myndbandi við blóðtöku úr hryssum.
Forsvarsmenn félagsins hafa ávallt bent á að velferð hryssna og folalda í blóðhryssnabúskap þurfi að vera í fyrirrúmi. Það eru því áfall að verða vitni að þeirri meðferð sem sést í myndbandinu. Hvorki aðbúnaður, umgjörð og hvað þá heldur sú illa meðferð sem hryssurnar eru beittar er á nokkurn hátt réttlætanleg.
Það er skýlaus krafa Félags hrossabænda að rannsakað verði það sem fram kemur í myndbandinu og upplýst af hálfu Mast hvernig eftirliti með þessari starfsemi sé og hafi verið háttað og hver beri ábyrgð á þeirri stöðu sem uppi er.
Stjórn Félag hrossabænda.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH